FRÉTT VERÐLAG 11. OKTÓBER 2006

Vísitala neysluverðs í október 2006 er 266,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,23% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,6 stig, hækkaði um 0,16% frá því í september.
Sumarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,4% (vísitöluáhrif 0,16%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,5% (0,09%), þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,01% og af hækkun vaxta 0,08%. Þá hækkaði verð á húsgögnum og heimilisbúnaði um 4,7% (0,11%).

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 4,1% (-0,28%) og verð á dagvöru lækkaði um 0,7% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,2% sem jafngildir 4,8% verðbólgu á ári (4,3% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í október 2006, sem er 266,2 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.256 stig fyrir nóvember 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
September 2006 Október 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 148,8 149,1 7,1% 7,1%
Þar af:    
Innlendar vörur 137,6 137,4 8,8% 1,3%
Búvörur og grænmeti 134,3 132,9 9,1% 0,6%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 139,6 140,3 8,6% 0,7%
Innfluttar vörur alls 120,9 120,8 5,2% 1,8%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  117,1 116,9 5,1% 1,6%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 149,3 150,2 7,1% 6,2%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 150,1 151,0 7,6% 6,1%
Dagvara 132,0 131,0 9,6% 1,4%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.