Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október 2018 er 459,4 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,57% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 392,8 stig og hækkar um 0,59% frá september 2018.
Verð á nýjum bílum hækkaði um 2,6% (áhrif á vísitöluna 0,21%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,6% (0,12%). Matur og drykkjarvörur hækkuðu um 0,9% (0,10%). Veggjöld lækkuðu þar sem gjaldtöku hefur verið hætt (-0,13%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,7%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2018, sem er 459,4 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.071 stig fyrir desember 2018.
Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2017 | ||||||
Október | 446,7 | 0,5 | 5,8 | 3,5 | 2,1 | 1,9 |
Nóvember | 446,0 | -0,2 | -1,9 | 1,8 | 1,4 | 1,7 |
Desember | 447,2 | 0,3 | 3,3 | 2,4 | 1,9 | 1,9 |
2018 | ||||||
Janúar | 446,8 | -0,1 | -1,1 | 0,1 | 1,8 | 2,4 |
Febrúar | 449,5 | 0,6 | 7,5 | 3,2 | 2,5 | 2,3 |
Mars | 452,0 | 0,6 | 6,9 | 4,4 | 3,4 | 2,8 |
Apríl | 452,2 | 0,0 | 0,5 | 4,9 | 2,5 | 2,3 |
Maí | 451,8 | -0,1 | -1,1 | 2,1 | 2,6 | 2,0 |
Júní | 454,6 | 0,6 | 7,7 | 2,3 | 3,3 | 2,6 |
Júlí | 454,8 | 0,0 | 0,5 | 2,3 | 3,6 | 2,7 |
Ágúst | 455,7 | 0,2 | 2,4 | 3,5 | 2,8 | 2,6 |
September | 456,8 | 0,2 | 2,9 | 1,9 | 2,1 | 2,7 |
Október | 459,4 | 0,6 | 7,0 | 4,1 | 3,2 | 2,8 |