FRÉTT VERÐLAG 29. OKTÓBER 2020

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2020, er 489,1 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,43% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 419,3 stig og hækkar um 0,43% frá september 2020.

Verð á mat og drykkjavörum hækkaði um 1,0% (áhrif á vísitöluna 0,15%) og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,6% (0,09%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2020, sem er 489,1 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2020. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.657 stig fyrir desember 2020.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2019-2020
Maí 1988 = 100 Vísitala Mánaðarbreyting, % Ársbreyting, %
2019
Október 472,2 0,36 2,8
Nóvember 472,8 0,13 2,7
Desember 473,3 0,11 2,0
2020
Janúar 469,8 -0,74 1,7
Febrúar 474,1 0,92 2,4
Mars 475,2 0,23 2,1
Apríl 477,5 0,48 2,2
Maí 480,1 0,54 2,6
Júní 482,2 0,44 2,6
Júlí 482,9 0,15 3,0
Ágúst 485,1 0,46 3,2
September 487,0 0,39 3,5
Október 489,1 0,43 3,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.