FRÉTT VERÐLAG 27. OKTÓBER 2021

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2021, er 511,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,59% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 431,8 stig og hækkar um 0,47% frá september 2021.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,4% (áhrif á vísitöluna 0,23%). Verð á bensíni og olíum hækkaði um 4,2% (0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,0%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2021, sem er 511,2 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2021. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.094 stig fyrir desember 2021.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2020-2021
Maí 1988 = 100 Vísitala Mánaðarbreyting, % Ársbreyting, %
2020
Október 489,1 0,43 3,6
Nóvember 489,3 0,04 3,5
Desember 490,3 0,20 3,6
2021
Janúar 490,0 -0,06 4,3
Febrúar 493,4 0,69 4,1
Mars 495,8 0,49 4,3
Apríl 499,3 0,71 4,6
Maí 501,4 0,42 4,4
Júní 502,7 0,26 4,3
Júlí 503,5 0,16 4,3
Ágúst 505,8 0,46 4,3
September 508,2 0,47 4,4
Október 511,2 0,59 4,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.