FRÉTT VERÐLAG 27. OKTÓBER 2022

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2022, er 559,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,67% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 463,0 stig og hækkar um 0,65% frá september 2022.

Verð á matvælum hækkaði um 1,6% (áhrif á vísitöluna 0,22%), en þar munar mestu um lambakjöt sem hækkaði um 16,2% (0,09%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,16%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,4% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,2%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2022, sem er 559,3 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.043 stig fyrir desember 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.