FRÉTT VERÐLAG 30. OKTÓBER 2024

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2024, er 634,1 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,28% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 510,8 stig og hækkar um 0,29% frá október 2024.

Verð á mat hækkaði um 1,0% (áhrif á vísitöluna 0,13%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 6,6% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,8%.

Vegna fyrirspurna varðandi það hvaða áhrif upptaka á kílómetragjaldi á ökutæki kynni að hafa á vísitölu neysluverðs hefur Hagstofan bætt við lið um slík gjöld undir Spurt og svarað á vef Hagstofunnar.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2024, sem er 634,1 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2024.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.