Vísitala neysluverðs í september 2005 er 246,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 231,4 stig, hækkaði um 1,71% frá því í ágúst.
Sumarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 13,0% (vísitöluáhrif 0,60%). Verð á dagvörum hækkaði um 1,7% (0,28%) og á bensíni og gasolíu um 4,9% (0,25%).
Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,2% (0,19%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,22% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,03%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% sem jafngildir 7,6% verðbólgu á ári (5,7% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs í september 2005, sem er 246,9 stig, gildir til verðtryggingar í október 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.875 stig fyrir október 2005.
Breytingar vísitölu neysluverðs 2004–2005 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2004 | ||||||
Ágúst | 234,6 | 0,0 | 0,0 | 1,2 | 4,6 | 3,7 |
September | 235,6 | 0,4 | 5,2 | -0,2 | 4,3 | 3,4 |
Október | 237,4 | 0,8 | 9,6 | 4,9 | 4,7 | 3,7 |
Nóvember | 237,9 | 0,2 | 2,6 | 5,7 | 3,4 | 3,8 |
Desember | 239,0 | 0,5 | 5,7 | 5,9 | 2,8 | 3,9 |
2005 | ||||||
Janúar | 239,2 | 0,1 | 1,0 | 3,1 | 4,0 | 4,0 |
Febrúar | 239,7 | 0,2 | 2,5 | 3,1 | 4,4 | 4,5 |
Mars | 241,5 | 0,8 | 9,4 | 4,3 | 5,1 | 4,7 |
Apríl | 242,0 | 0,2 | 2,5 | 4,8 | 3,9 | 4,3 |
Maí | 240,7 | -0,5 | -6,3 | 1,7 | 2,4 | 2,9 |
Júní | 242,4 | 0,7 | 8,8 | 1,5 | 2,9 | 2,8 |
Júlí | 242,7 | 0,1 | 1,5 | 1,2 | 2,9 | 3,5 |
Ágúst | 243,2 | 0,2 | 2,5 | 4,2 | 2,9 | 3,7 |
September | 246,9 | 1,5 | 19,9 | 7,6 | 4,5 | 4,8 |
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Ágúst 2005 | Sept. 2005 | Áhrif á vísit. | ||
% | ||||
Vísitala neysluverðs | 136,2 | 138,3 | 4,8% | 4,8% |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur | 123,3 | 124,6 | -1,4% | -0,2% |
Búvörur og grænmeti | 117,8 | 120,2 | -0,5% | 0,0% |
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 127,0 | 127,4 | -2,0% | -0,2% |
Innfluttar vörur alls | 110,9 | 114,4 | 0,3% | 0,1% |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 106,8 | 110,7 | 0,0% | 0,0% |
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
ávaxta og bensíns) | 137,5 | 139,2 | 4,8% | 4,2% |
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 137,4 | 139,2 | 4,6% | 3,7% |
Dagvara | 115,7 | 117,7 | -3,5% | -0,6% |
Talnaefni