FRÉTT VERÐLAG 12. SEPTEMBER 2005

Vísitala neysluverðs í september 2005 er 246,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 231,4 stig, hækkaði um 1,71% frá því í ágúst.

Sumarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 13,0% (vísitöluáhrif 0,60%). Verð á dagvörum hækkaði um 1,7% (0,28%) og á bensíni og gasolíu um 4,9% (0,25%).

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,2% (0,19%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,22% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,03%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% sem jafngildir 7,6% verðbólgu á ári (5,7% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í september 2005, sem er 246,9 stig, gildir til verðtryggingar í október 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.875 stig fyrir október 2005. 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2004–2005
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2004
Ágúst 234,6 0,0 0,0 1,2 4,6 3,7
September 235,6 0,4 5,2 -0,2 4,3 3,4
Október 237,4 0,8 9,6 4,9 4,7 3,7
Nóvember 237,9 0,2 2,6 5,7 3,4 3,8
Desember 239,0 0,5 5,7 5,9 2,8 3,9
2005
Janúar 239,2 0,1 1,0 3,1 4,0 4,0
Febrúar 239,7 0,2 2,5 3,1 4,4 4,5
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Ágúst 2005 Sept. 2005 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 136,2 138,3 4,8% 4,8%
Þar af:    
Innlendar vörur 123,3 124,6 -1,4% -0,2%
Búvörur og grænmeti 117,8 120,2 -0,5% 0,0%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 127,0 127,4 -2,0% -0,2%
Innfluttar vörur alls 110,9 114,4 0,3% 0,1%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  106,8 110,7 0,0% 0,0%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 137,5 139,2 4,8% 4,2%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 137,4 139,2 4,6% 3,7%
Dagvara 115,7 117,7 -3,5% -0,6%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.