Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í september 2025, er 658,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,11% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 525,8 stig og lækkar um 0,13% frá ágúst 2025.
Föt og skór hækkuðu um 2,9% (áhrif á vísitölu 0,10%) og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,9% (0,18%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 15,4% (-0,39%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2025, sem er 658,3 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2025.