FRÉTT VERÐLAG 29. SEPTEMBER 2026

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í september 2026, er 697,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,39% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 556,0 stig og hækkar um 0,40% frá ágúst 2026.

Verð á dísel hækkaði um 18,1% (áhrif á vísitöluna 0,15%) og verð á bensíni hækkaði um 16,1% (0,28%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 11,7% (-0,37%).

Þann 1. september rann út tímabundin lækkun virðisaukaskatts á dísel og bensíni og hækkaði VSK á þessum eldsneytisgjöfum því úr 11% í 24%. Ef verð á þessum eldsneytisgjöfum er reiknað með 11% vsk í stað 24% þá fæst að verð á dísel væri 5,7% hærra en fyrir mánuði (áhrif á vísitölu 0,05%) og verð á bensíni væri 3,9% hærra (0,07%). Heildaráhrif virðisaukaskattsbreytingarinnar, á vísistölu neysluverðs eru því metin um 0.32% til hækkunar.

Kostnaður við göngudeildarþjónustu jókst um 2,6% (áhrif á vísitöluna 0,06%) en sú aukning er meðal annars vegna hækkunar á komugjöldum á heilsugæslu. Komugjöldin breyttust síðast í janúar 2021 þegar þau lækkuðu úr 1.000 krónum í 500 krónur á dagvinnutíma en hækka nú aftur í 1.000 krónur. Komugjöld utan dagvinnutíma hækkuðu núna úr 3.100 krónum í 3.500 krónur.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,9% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2026, sem er 697,3 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2026.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.