FRÉTT VERÐLAG 29. MAÍ 2013

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí 2013 er 411,3 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,05% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 391,3 stig og lækkaði um 0,18% frá apríl.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 6,4% (vísitöluáhrif -0,10%).

Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakaupa var tekið í notkun 4. maí 2013. Ekki er ljóst nú hver heildaráhrif af kerfisbreytingunni verða.

Þann 13. maí 2013 tók gildi reglugerð nr. 451/2013 þar sem þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í tannlæknakostnaði barna er aukin. Tekið var tillit til þessa við útreikning á vísitölu neysluverðs í maí. Kerfisbreytingin leiddi til 3,1% lækkunar á tannlækningalið vísitölunnar (vísitöluáhrif -0,04%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,3% og vísitalan án húsnæðis um 3,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári (0,6% verðhjöðnun á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2013, sem er 411,3 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.121 stig fyrir júlí 2013.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2013
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  April Maí %
Vísitala neysluverðs 230,5 230,4 3,3 3,3
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 209,5 209,4 5,7 0,8
Búvörur og grænmeti 195,6 196,4 7,4 0,5
Innlendar vörur án búvöru 219,9 218,9 4,2 0,3
Innfluttar vörur alls 203,4 202,1 0,8 0,3
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  195,0 193,6 0,1 0,0
Dagvara 208,9 208,3 5,0 0,8

Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2012
Maí 398,1 0,0 -0,3 7,5 7,1 5,4
Júní 400,1 0,5 6,2 5,2 7,4 5,4
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3
Október 400,7 0,3 3,4 3,6 1,3 4,2
Nóvember 402,0 0,3 4,0 5,6 2,0 4,5
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9
Apríl 411,5 0,2 2,4 8,4 5,5 3,3
Maí 411,3 0,0 -0,6 1,4 4,7 3,3

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.