FRÉTT VERÐLAG 29. JANÚAR 2015

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2015 er 419,3 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,71% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 389,2 stig og lækkaði um 1,29% frá desember 2014.

Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 15,2% (áhrif á vísitöluna -0,72%) og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. lækkaði um 4,9% (-0,22%). Verð á bensíni og olíum lækkaði um 11,0% (-0,42%). Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 2,6% (0,38%) en kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð leiga) hækkaði um 1,3% (0,19%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% og vísitala án húsnæðis hefur lækkað um 0,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,9% sem jafngildir 3,6% verðhjöðnun á ári (6,5% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Í janúar 2015 tóku gildi breytingar á skattkerfinu. Almenn vörugjöld og sykurskattur voru felld niður og efra þrep virðisaukaskatts var lækkað úr 25,5% í 24,0% en lægra þrep virðisaukaskatts (matvæli o.fl.) hækkað úr 7% í 11%. Ekki er unnt að meta áhrif þessara breytinga á sköttum sérstaklega, en benda má á að vísitala neysluverðs á fastskattagrunni lækkaði um 1,12% frá fyrra mánuði. Þar er virðisaukaskatti, áfengis- og tóbaksgjaldi, olíugjaldi og orkusköttum á rafmagn og heitt vatn haldið föstum miðað við desember 2014. Verðbreytingar vegna afnáms vörugjalda og sykurskatts er ekki hægt að aðgreina frá öðrum verðbreytingum við útreikning vísitölu neysluverðs.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2015, sem er 419,3 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.279 stig fyrir mars 2015.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
         
Vísitala neysluverðs 236,6 234,9 0,8 0,8
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 211,6 217,7 1,8 0,2
Búvörur og grænmeti 197,0 205,3 1,1 0,1
Innlendar vörur án búvöru 222,8 226,3 2,4 0,2
Innfluttar vörur alls 197,4 188,3 -5,0 -1,7
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  188,2 178,7 -5,6 -1,7
Dagvara 208,5 213,3 0,8 0,1

 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2014            
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1
Mars 419,7 0,2 2,9 0,8 2,2 2,2
Apríl 421,0 0,3 3,8 5,0 2,8 2,3
Maí 421,3 0,1 0,9 2,5 2,2 2,4
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.