FRÉTT VERÐLAG 30. JANÚAR 2014

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2014 er 415,9 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,72% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 391,5 stig og lækkaði um 1,09% frá desember.

Víða eru vetrarútsölur og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,8% (vísitöluáhrif -0,55%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði um 2,8% (-0,13%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 14,6% milli mánaða (-0,21%) og bensín og olíur lækkuðu um 2,5% (-0,14%). Kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,6% (0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,1% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,2% sem jafngildir 0,7% verðbólgu á ári (2,2%  verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2014, sem er 415,9 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.212 stig fyrir mars 2014.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2013-2014
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
Vísitala neysluverðs 234,7 233,0 3,1 3,1
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 213,3 213,9 3,8 0,5
Búvörur og grænmeti 201,6 203,2 5,7 0,4
Innlendar vörur án búvöru 221,4 221,0 2,1 0,1
Innfluttar vörur alls 203,2 198,2 -0,1 0,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  194,8 189,2 -0,3 -0,1
Dagvara 211,1 211,6 3,1 0,5

Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9
Apríl 411,5 0,2 2,4 8,4 5,5 3,3
Maí 411,3 0,0 -0,6 1,4 4,7 3,3
Júní 413,5 0,5 6,6 2,8 5,7 3,3
Júlí 412,4 -0,3 -3,1 0,9 4,6 3,8
Ágúst 413,8 0,3 4,2 2,5 1,9 4,3
September 415,2 0,3 4,1 1,7 2,2 3,9
Október 415,2 0,0 0,0 2,7 1,8 3,6
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2
2014
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.