Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í desember 2012 að jafnaði 180.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 170.300 starfandi og 10.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 80%, hlutfall starfandi 75,5% og atvinnuleysi var 5,6%. Atvinnuleysi var 0,3 prósentustigum lægra en í desember 2011 en þá var atvinnuleysi 5,9%. Atvinnuleysi í desember 2012 var 6,2% á meðal karla miðað við 6,7% í desember 2011 og meðal kvenna var það 5% miðað við 5,1% í desember 2011.
Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegar eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.
Flæðirit – Vinnumarkaður desember 2012
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 5,7%
Árstíðaleiðréttur fjöldi atvinnulausra í desember 2012 var 10.300 eða 5,7% en var 7.800 eða 4,5% í nóvember 2012. Fjöldi starfandi í desember 2012 var 171.200 eða 75,9% en var 176.200 eða 75,9% í nóvember 2012. Hlutfall starfandi er því það sama á milli mánaða þrátt fyrir fjölgun starfandi fólks vegna þess að fleiri voru á vinnumarkaði nú í desember en í mánuðinum á undan. Leitni árstíðaleiðréttingar á atvinnuleysi sýnir að síðastliðna sex mánuði hefur atvinnulausum fækkað um 10,2% og hlutfallið lækkað um 0,5 prósentustig. Ef litið er til síðustu tólf mánaða sýnir leitnin að fjöldi atvinnulausra minnkaði um 15,8% og hlutfallið lækkaði um 1 prósentustig. Leitnin sýnir hæga þróun á fjölgun starfandi síðustu tólf mánuði eða 1,5%.
Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnu sveiflurnar frá öðrum óreglulegum breytingum. Leiðrétting gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.
Desember 2012 nær til fjögurra vikna, frá 3. til 30. desember. Úrtakið í desember var 1.201 einstaklingur á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.181 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 934 einstaklingum sem jafngildir 79,1% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,6%, hlutfall starfandi ±2,8% og atvinnuleysi ±1,7%. Allar fjöldatölur eru afrúnnaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í desember - Mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2010 | (± 95%) | 2011 | (± 95%) | 2012 | (± 95%) | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 80,4 | 2,2 | 79,2 | 2,2 | 80,0 | 2,6 |
Hlutfall starfandi | 73,7 | 2,5 | 74,5 | 2,4 | 75,5 | 2,8 |
Atvinnuleysi | 8,2 | 1,7 | 5,9 | 1,7 | 5,6 | 1,7 |
Vinnustundir | 36,3 | 1,1 | 37,2 | 1,1 | 37,6 | 1,4 |
Vinnuafl | 179.700 | 5.000 | 177.300 | 5.000 | 180.500 | 5.800 |
Starfandi | 164.900 | 5.500 | 166.900 | 5.300 | 170.300 | 6.200 |
Atvinnulausir | 14.800 | 3.100 | 10.500 | 2.600 | 10.100 | 3.000 |
Utan vinnumarkaðar | 43.900 | 5.000 | 46.700 | 5.000 | 45.000 | 5.800 |
Áætlaður mannfjöldi | 223.700 | • | 224.000 | • | 225.500 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði - Árstíðaleiðrétting | ||||||
júl.12 | ágú.12 | sep.12 | okt.12 | nóv.12 | des.12 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,0 | 79,1 | 81,1 | 79,8 | 79,4 | 80,5 |
Hlutfall starfandi | 76,6 | 74,2 | 76,7 | 75,9 | 75,9 | 75,9 |
Atvinnuleysi | 5,4 | 6,3 | 5,4 | 4,8 | 4,5 | 5,7 |
Vinnustundir | 40,3 | 39,3 | 39,2 | 39,5 | 39,4 | 40,3 |
Vinnuafl | 181.400 | 174.200 | 182.900 | 178.800 | 176.200 | 181.500 |
Starfandi | 171.700 | 163.300 | 173.100 | 170.100 | 168.300 | 171.200 |
Atvinnulausir | 9.700 | 10.900 | 9.800 | 8.700 | 7.800 | 10.300 |
Utan vinnumarkaðar | 42.700 | 45.900 | 42.800 | 45.200 | 45.700 | 44.000 |
Áætlaður mannfjöldi | 224.100 | 220.100 | 225.700 | 224.000 | 221.900 | 225.500 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði - Árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
júl.12 | ágú.12 | sep.12 | okt.12 | nóv.12 | des.12 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 80,8 | 80,4 | 80,2 | 80,0 | 79,9 | 79,9 |
Hlutfall starfandi | 76,1 | 75,9 | 75,7 | 75,6 | 75,6 | 75,6 |
Atvinnuleysi | 5,8 | 5,7 | 5,6 | 5,4 | 5,4 | 5,4 |
Vinnustundir | 39,8 | 39,6 | 39,5 | 39,5 | 39,7 | 39,8 |
Vinnuafl | 180.400 | 179.600 | 179.300 | 179.200 | 179.200 | 179.300 |
Starfandi | 169.900 | 169.400 | 169.300 | 169.500 | 169.500 | 169.600 |
Atvinnulausir | 10.500 | 10.200 | 10.000 | 9.700 | 9.700 | 9.700 |
Utan vinnumarkaðar | 42.900 | 43.700 | 44.400 | 44.800 | 45.100 | 45.100 |
Áætlaður mannfjöldi | 223.300 | 223.300 | 223.700 | 224.100 | 224.300 | 224.400 |