Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í janúar 2013 að jafnaði 177.800 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.400 starfandi og 10.400 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 78,7%, hlutfall starfandi 74,1% og atvinnuleysi var 5,8%. Atvinnuleysi var 0,9 prósentustigum lægra en í janúar 2012 en þá var atvinnuleysi 6,7%. Atvinnuleysi í janúar 2013 var 6,4% á meðal karla miðað við 6,6% í janúar 2012 og meðal kvenna var það 5,3% miðað við 6,9% í janúar 2012.
Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegar eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.
Flæðirit – Vinnumarkaður janúar 2013
Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðu vegna þess að tölur eru jafnaðar.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 5,8%
Árstíðaleiðréttur fjöldi atvinnulausra í janúar 2013 var 10.500 eða 5,8% en var 10.000 eða 5,5% í desember 2012. Fjöldi starfandi í janúar 2013 var 169.900 eða 75,6% en var 171.700 eða 76,3% í desember 2012. Atvinnuleysi eykst því um 0,3 prósentustig á milli mánaða hlutfall starfandi lækkar um 0,7 prósentustig. Þessi breyting kann að skýrast af því að í desember eykst atvinnustig nokkuð vegna þátttöku námsmanna á vinnumarkaði. Leitni árstíðaleiðréttingar á atvinnuleysi sýnir að síðastliðna sex mánuði hefur atvinnulausum fækkað um 2,3% og hlutfallið minnkað um 0,2 prósentustig. Ef litið er til síðustu tólf mánaða sýnir leitnin að fjöldi atvinnulausra minnkaði um 14,9% og hlutfallið lækkaði um 1 prósentustig. Leitnin sýnir mjög hæga þróun á starfandi fólki síðustu tólf mánuði eða 1% aukningu á fjölda starfandi og hlutfallið hefur hækkað um 0,6 prósentustig.
Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnu sveiflurnar frá öðrum óreglulegum breytingum. Leiðrétting gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.
Janúar 2013 nær til fimm vikna, frá 31. desember 2012 til 3. febrúar 2013. Úrtakið í desember var 1.520 einstaklingur á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.481 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 1.197 einstaklingum sem jafngildir 80,8% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,3%, hlutfall starfandi ±2,5% og atvinnuleysi ±1,5%. Fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í janúar - mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2011 | (±95%) | 2012 | (±95%) | 2013 | (±95%) | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 79,4 | 2,5 | 79,7 | 2,5 | 78,7 | 2,3 |
Hlutfall starfandi | 73,1 | 2,8 | 74,4 | 2,7 | 74,1 | 2,5 |
Atvinnuleysi | 7,9 | 2 | 6,7 | 1,5 | 5,8 | 1,5 |
Vinnustundir | 39,0 | 1,2 | 39,3 | 1,2 | 37,0 | 1,1 |
Vinnuafl | 176.500 | 5.600 | 178.300 | 5.600 | 177.800 | 5.200 |
Starfandi | 162.600 | 6.200 | 166.300 | 6.100 | 167.400 | 5.600 |
Atvinnulausir | 13.900 | 3.500 | 12.000 | 3.100 | 10.400 | 2.700 |
Utan vinnumarkaðar | 45.800 | 5.600 | 45.300 | 5.600 | 48.100 | 5.200 |
Áætlaður mannfjöldi | 222.300 | • | 223.600 | • | 225.800 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði - árstíðaleiðrétting | ||||||
ágú.12 | sep.12 | okt.12 | nóv.12 | des.12 | jan.13 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 78,5 | 81,9 | 80,1 | 78,4 | 80,8 | 80,3 |
Hlutfall starfandi | 73,6 | 77,5 | 76,3 | 74,9 | 76,3 | 75,6 |
Atvinnuleysi | 6,2 | 5,4 | 4,8 | 4,5 | 5,5 | 5,8 |
Vinnustundir | 39,4 | 39,3 | 39,5 | 39,3 | 39,8 | 39,2 |
Vinnuafl | 174.300 | 183.000 | 178.800 | 175.800 | 181.700 | 180.400 |
Starfandi | 163.400 | 173.200 | 170.100 | 168.000 | 171.700 | 169.900 |
Atvinnulausir | 10.900 | 9.800 | 8.700 | 7.800 | 10.000 | 10.500 |
Utan vinnumarkaðar | 47.700 | 40.400 | 44.300 | 48.500 | 43.300 | 44.300 |
Áætlaður mannfjöldi | 222.000 | 223.400 | 223.000 | 224.400 | 225.000 | 224.700 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði - árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
ágú.12 | sep.12 | okt.12 | nóv.12 | des.12 | jan.13 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 79,8 | 79,7 | 79,6 | 79,6 | 79,6 | 79,7 |
Hlutfall starfandi | 75,2 | 75,2 | 75,2 | 75,2 | 75,2 | 75,3 |
Atvinnuleysi | 5,8 | 5,6 | 5,5 | 5,5 | 5,5 | 5,6 |
Vinnustundir | 39,6 | 39,5 | 39,5 | 39,5 | 39,5 | 39,4 |
Vinnuafl | 177.800 | 178.000 | 178.300 | 178.600 | 178.900 | 179.100 |
Starfandi | 167.600 | 168.000 | 168.600 | 168.900 | 169.000 | 169.100 |
Atvinnulausir | 10.200 | 10.000 | 9.800 | 9.700 | 9.900 | 10.000 |
Utan vinnumarkaðar | 45.000 | 45.300 | 45.700 | 45.900 | 45.800 | 45.600 |
Áætlaður mannfjöldi | 222.800 | 223.300 | 224.000 | 224.500 | 224.700 | 224.700 |
Talnaefni