FRÉTT VINNUMARKAÐUR 26. JANÚAR 2016

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 188.500 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í desember 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 184.900 starfandi og 3.600 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,9%. Atvinnuleysi hefur ekki mælst lægra í mælingum Hagstofu Íslands síðan í nóvember 2007 þegar það mældist 1,3%. Samanburður mælinga í desember 2014 og 2015 sýnir að það fjölgaði í vinnuaflinu um 4.800 manns, atvinnuþátttakan jókst því um eitt prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 9.100 og hlutfallið af mannfjölda um 2,9 stig. Atvinnulausum fækkaði um 4.300 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu minnkaði um 2,4 stig.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára desember 2015

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,3% í desember
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 190.400 í desember 2015 sem jafngildir 82,4% atvinnuþátttöku, sem er 0,8 prósentustigum lægri en hún var í nóvember. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var hlutfall starfandi fólks 80,5% og jókst um 0,9 prósentustig á milli nóvember og desember. Á sama tíma lækkaði hlutfall atvinnulausra um tvö stig, úr 4,3% í 2,3%. Þegar horft er til ársins 2015 þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnulausum fækkaði árinu um 1.300 á meðan starfandi fólki fjölgaði um 4.300.

 

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum, eins og sjá má á myndunum hér að framan, og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu. Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Desember 2015 nær til fjögurra vikna, eða frá 30. nóvember til 27. desember. Úrtakið var 1.213 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.188 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 891 einstaklingi sem jafngildir 75,1% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,5, hlutfall starfandi ±2,6 og atvinnuleysi ±1. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í desember - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 80,9 2,5 80,0 2,5 81,0 2,5
Hlutfall starfandi 77,3 2,6 76,6 2,7 79,4 2,6
Atvinnuleysi 4,4 1,5 4,3 1 1,9 1
Vinnustundir 37,3 1,4 36,9 1,4 37,7 1,3
Vinnuafl 185.100 5.600 183.700 5.800 188.500 5.900
Starfandi 176.900 6.000 175.800 6.200 184.900 6.100
Atvinnulausir 8.200 2.700 7.900 2.800 3.600 1.900
Utan vinnumarkaðar 43.800 5.600 45.900 5.800 44.200 5.900
Áætlaður mannfjöldi 229.000 229.600 232.700

Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  júl.15 ágú.15 sep.15 okt.15 nóv.15 des.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 81,8 83,3 82,8 82,0 83,2 82,4
Hlutfall starfandi 78,5 80,0 79,3 78,7 79,6 80,5
Atvinnuleysi 4,1 4,0 4,2 4,1 4,3 2,3
Vinnustundir 40,2 40,0 40,3 40,5 40,2 40,3
Vinnuafl 189.200 192.000 190.300 190.400 194.700 190.400
Starfandi 181.400 184.200 182.300 182.700 186.300 186.100
Atvinnulausir 7.800 7.700 8.000 7.800 8.400 4.300
Utan vinnumarkaðar 42.000 38.400 39.500 41.800 39.300 40.700
Áætlaður mannfjöldi 231.200 230.300 229.800 232.200 234.000 231.100 
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  júl.15 ágú.15 sep.15 okt.15 nóv.15 des.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,8 82,7 82,5 82,5 82,5 82,6
Hlutfall starfandi 79,6 79,5 79,3 79,3 79,5 79,6
Atvinnuleysi 3,9 3,9 3,9 3,8 3,7 3,6
Vinnustundir 40,1 40,2 40,2 40,3 40,3 40,3
Vinnuafl 191.100 190.800 190.800 191.100 191.900 192.500
Starfandi 183.600 183.400 183.400 183.900 184.800 185.600
Atvinnulausir 7.500 7.500 7.400 7.300 7.100 6.900
Utan vinnumarkaðar 39.600 39.900 40.400 40.700 40.700 40.600
Áætlaður mannfjöldi 230.700 230.800 231.100 231.800 232.600 233.100

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.