Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í júlí 2014 að jafnaði 195.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 189.200 starfandi og 6.400 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 84,9%, hlutfall starfandi 82,1% og atvinnuleysi var 3,3%. Samanburður mælinga í júlí 2013 og 2014 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 0,9 prósentustig og hlutfall starfandi jókst um 1,1 stig. Hlutfall atvinnulausra minnkaði á sama tíma um 0,4 prósentustig.
Í júlí 2014 var atvinnuleysi á meðal 16-24 ára 4,6% á meðan það var 3% hjá 25 ára og eldri.
Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára í júlí 2014
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4,4% í júlí 2014
Þegar leiðrétt er fyrir árstíðasveiflum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 187.200 í júlí 2014 sem jafngildir 82,2% atvinnuþátttöku, sem er litlu lægri en hún var í júní en þá var þátttakan 82,5%. Fjöldi atvinnulausra í júlí var 8.300 og fækkaði um 1.400 manns frá því í júní 2014. Hlutfall atvinnulausra var 4,4% í júlí en var 5,2% í júní. Fjöldi starfandi fólks í júlí var 179.000, eða 78,6%, en var 178.400 í júní. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu minnkaði atvinnuleysi um 0,7 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi jókst um 0,4 prósentustig.
Þegar leitni árstíðaleiðréttinga á vinnumarkaðstölum síðastliðinna 6 mánaða er skoðuð sést að enn dregur úr hlutfalli og fjölda atvinnulausra á meðan hlutfall og fjöldi starfandi fólks eykst og fólki utan vinnumarkaðar fækkar.
Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum, eins og sjá má á myndunum hér að framan. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina þessar árstíðabundnu sveiflur frá óreglulegum breytingum. Leiðrétting gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.
Júní 2014 nær til fimm vikna, frá 30. júní til 3. ágúst 2014. Úrtakið var 1.524 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.500 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.153 einstaklingum sem jafngildir 76,9% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2%, hlutfall starfandi ±2,1% og atvinnuleysi ±1,1%. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í júlí - mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2012 | (±95%) | 2013 | (±95%) | 2014 | (±95%) | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 84,3 | 2,3 | 84,0 | 2,3 | 84,9 | 2 |
Hlutfall starfandi | 80,5 | 2,5 | 81,0 | 2,4 | 82,1 | 2,1 |
Atvinnuleysi | 4,4 | 1,4 | 3,6 | 1,1 | 3,3 | 1,1 |
Vinnustundir | 43,3 | 1,4 | 43,3 | 1,4 | 41,9 | 1,2 |
Vinnuafl | 188.400 | 5.100 | 191.100 | 5.100 | 195.500 | 4.500 |
Starfandi | 180.100 | 5.500 | 184.100 | 5.500 | 189.200 | 4.900 |
Atvinnulausir | 8.400 | 2.600 | 6.900 | 2.500 | 6.400 | 2.200 |
Utan vinnumarkaðar | 35.200 | 5.100 | 36.400 | 5.100 | 34.800 | 4.500 |
Áætlaður mannfjöldi | 223.600 | • | 227.400 | • | 230.400 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði - árstíðaleiðrétting | ||||||
feb.14 | mar.14 | apr.14 | maí.14 | jún.14 | júl.14 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 80,1 | 81,1 | 80,0 | 82,5 | 82,5 | 82,2 |
Hlutfall starfandi | 76,6 | 76,5 | 75,9 | 78,5 | 78,2 | 78,6 |
Atvinnuleysi | 4,4 | 5,7 | 5,1 | 4,9 | 5,2 | 4,4 |
Vinnustundir | 39,7 | 39,9 | 40,0 | 39,7 | 40,0 | 39,5 |
Vinnuafl | 184.000 | 186.900 | 183.400 | 188.000 | 188.100 | 187.200 |
Starfandi | 175.800 | 176.200 | 174.000 | 178.800 | 178.400 | 179.000 |
Atvinnulausir | 8.200 | 10.600 | 9.400 | 9.200 | 9.700 | 8.300 |
Utan vinnumarkaðar | 45.600 | 43.500 | 45.700 | 39.800 | 39.900 | 40.500 |
Áætlaður mannfjöldi | 229.500 | 230.300 | 229.200 | 227.800 | 228.000 | 227.700 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði - árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
feb.14 | mar.14 | apr.14 | maí.14 | jún.14 | júl.14 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 80,9 | 81,0 | 81,3 | 81,7 | 81,9 | 82,0 |
Hlutfall starfandi | 76,6 | 76,8 | 77,2 | 77,6 | 77,8 | 78,0 |
Atvinnuleysi | 5,3 | 5,2 | 5,1 | 5,0 | 5,0 | 4,9 |
Vinnustundir | 39,8 | 39,8 | 39,8 | 39,8 | 39,8 | 39,8 |
Vinnuafl | 185.100 | 185.400 | 186.100 | 187.100 | 188.000 | 188.600 |
Starfandi | 175.400 | 175.700 | 176.500 | 177.700 | 178.600 | 179.200 |
Atvinnulausir | 9.800 | 9.700 | 9.500 | 9.400 | 9.400 | 9.300 |
Utan vinnumarkaðar | 43.800 | 43.500 | 42.700 | 42.000 | 41.500 | 41.300 |
Áætlaður mannfjöldi | 229.000 | 228.900 | 228.800 | 229.000 | 229.500 | 229.900 |
Talnaefni