FRÉTT VINNUMARKAÐUR 27. MAÍ 2015

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 191.600 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í apríl 2015, sem jafngildir 82,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 181.000 starfandi og 10.600 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,8% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 5,5%. Samanburður mælinga fyrir apríl 2014 og 2015 sýnir að þátttaka fólks á vinnumarkaði jókst um 3,2 prósentustig og fjölgun vinnuaflsins var um 10.900 manns. Starfandi fólki fjölgaði um 11.200 manns og hlutfallið jókst um 3,4 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði lítillega eða um 300 manns en hlutfall atvinnuleysis er lægra sem nemur 0,5 prósentustigum. Fólki sem stendur utan vinnumarkaðar fækkaði um 6.400 manns. Fyrri mælingar á atvinnuleysi sýna að í apríl og maí eykst atvinnuleysi alltaf miðað við mánuðina á undan. Munar þar mestu um að ungt fólk kemur þá í auknum mæli inn á vinnumarkaðinn í leit að sumarstörfum. Í apríl 2015 var atvinnuleysi á meðal 16-24 ára 14,6% á meðan það var 3,7% hjá 25 ára og eldri. Borið saman við apríl 2014 þá var atvinnuleysi hjá 16-24 ára 15,6% og 4,2% hjá 25 ára og eldri.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára apríl 2015


 
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4,6% í apríl
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 192.600 í apríl 2015 sem jafngildir 82,4% atvinnuþátttöku, sem er 0,5 prósentustigum lægri en hún var í mars. Fjöldi atvinnulausra í apríl var samkvæmt árstíðaleiðréttingu 8.800 sem er aukning um 1.300 manns frá því í mars. Hlutfall atvinnulausra jókst úr 3,9% í mars í 4,6% í apríl. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í apríl 2015 var 78,6%, sem er lækkun um 1 prósentustig frá því í mars. Leitni vinnuaflstalna síðustu sex mánaða sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig og um 0,7 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðust sex mánuði hefur aukist um 0,3 stig og um 1,2 stig síðustu tólf mánuði.

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum, eins og sjá má á myndunum hér að framan. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina þessar árstíðabundnu sveiflur frá óreglulegum breytingum. Leiðrétting gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.

Apríl 2015 nær til fimm vikna, frá 30. mars til 3. maí 2015. Úrtakið var 1.526 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.494 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.192 einstaklingum sem jafngildir 79,8% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,1, hlutfall starfandi ±2,3 og atvinnuleysi ±1,4. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í apríl - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 2,4 79,2 2,6 82,3 2,1
Hlutfall starfandi 76,6 2,6 74,4 2,8 77,8 2,3
Atvinnuleysi 6,6 1,7 6,0 1,4 5,5 1,4
Vinnustundir 37,8 1,2 36,5 1,2 37,4 1,2
Vinnuafl 185.400 5.500 180.700 6.000 191.600 4.900
Starfandi 173.100 6.000 169.800 6.400 181.000 5.400
Atvinnulausir 12.300 3.200 10.900 3.100 10.600 2.700
Utan vinnumarkaðar 40.600 5.500 47.500 6.000 41.100 4.900
Áætlaður mannfjöldi 226.000 228.200 232.700
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir - árstíðaleiðrétting
   
  nóv.14 des.14 jan.15 feb.15 mar.15 apr.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 80,8 81,2 82,5 82,9 82,4
Hlutfall starfandi 79,0 77,3 77,9 78,7 79,6 78,6
Atvinnuleysi 3,7 4,4 4,1 4,6 3,9 4,6
Vinnustundir 40,4 40,0 40,2 39,8 39,9 39,8
Vinnuafl 187.600 186.400 188.900 192.000 192.000 192.600
Starfandi 180.700 178.100 181.200 183.100 184.500 183.800
Atvinnulausir 6.900 8.300 7.700 8.900 7.500 8.800
Utan vinnumarkaðar 41.100 44.200 43.700 40.700 39.700 41.100
Áætlaður mannfjöldi 228.700 230.500 232.600 232.700 231.700 233.700
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir - árstíðaleiðrétt leitni
   
  nóv.14 des.14 jan.15 feb.15 mar.15 apr.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,1 82,0 81,9 82,0 82,1 82,2
Hlutfall starfandi 78,3 78,3 78,3 78,4 78,6 78,7
Atvinnuleysi 4,6 4,5 4,4 4,3 4,3 4,3
Vinnustundir 40,0 40,0 40,0 40,0 39,9 39,9
Vinnuafl 189.000 189.200 189.700 190.600 191.400 191.900
Starfandi 180.300 180.700 181.300 182.300 183.200 183.600
Atvinnulausir 8.600 8.500 8.400 8.300 8.200 8.200
Utan vinnumarkaðar 41.200 41.600 41.900 42.000 41.800 41.600
Áætlaður mannfjöldi 230.200 230.800 231.600 232.500 233.200 233.400

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.