FRÉTT VINNUMARKAÐUR 24. JÚNÍ 2015

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.100 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í maí 2015, sem jafngildir 84,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 183.900 starfandi og 13.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 6,7%. Samanburður mælinga fyrir maí 2014 og 2015 sýnir að hlutfall vinnuafls og starfandi fólks af heildar mannfjölda stendur í stað. Atvinnulausum fækkaði lítillega eða um 700 manns og hlutfall atvinnuleysis er lægra sem nemur 0,5 prósentustigum. Fyrri mælingar á atvinnuleysi sýna að í maí er atvinnuleysi alltaf mest miðað við aðra mánuði ársins. Ástæður þessarar aukningar er að á vormánuðum kemur ungt fólk í auknum mæli inn á vinnumarkaðinn í leit að sumarstörfum. Í maí 2015 var atvinnuleysi á meðal 16-24 ára 15,4% á meðan það var 4,6% hjá 25 ára og eldri. Borið saman við maí 2014 þá var atvinnuleysi hjá 16-24 ára 16,7% og 5% hjá 25 ára og eldri.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára maí 2015

Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðu vegna þess að tölur eru jafnaðar.


Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4,1% í maí

Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 193.700 í maí 2015 sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku, sem er 0,6 prósentustigum hærri en hún var í apríl. Fjöldi atvinnulausra í maí var samkvæmt árstíðaleiðréttingu 8.000 sem er fækkun um 700 manns frá því í apríl. Hlutfall atvinnulausra minnkaði úr 4,5% í apríl í 4,1% í maí. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í maí 2015 var 79,6%, sem er aukning um 0,9 prósentustig frá því í apríl. Leitni vinnuaflstalna sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,2 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 0,7 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aukist um 0,6 stig og um 1,2 stig síðustu tólf mánuði.

 

 

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum, eins og sjá má á myndunum hér að framan. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.

Maí 2015 nær til fjögurra vikna, frá 4. til 31. maí. Úrtakið var 1.213 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.183 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 924 einstaklingum sem jafngildir 78,1% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,3, hlutfall starfandi ±2,6 og atvinnuleysi ±1,8. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í maí - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,4 2 84,9 2 84,5 2,3
Hlutfall starfandi 77,2 2,3 78,8 2,3 78,9 2,6
Atvinnuleysi 7,5 1,6 7,2 1,8 6,7 1,8
Vinnustundir 41,2 1 40,6 1,1 41,4 1,3
Vinnuafl 188.700 4.600 193.900 4.500 197.100 5.400
Starfandi 174.500 5.300 180.000 5.200 183.900 6.100
Atvinnulausir 14.100 3.000 13.900 3.100 13.200 3.500
Utan vinnumarkaðar 37.500 4.600 34.400 4.500 36.100 5.400
Áætlaður mannfjöldi 226.100 228.300 233.200
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  des.14 jan.15 feb.15 mar.15 apr.15 maí.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 80,8 81,2 82,5 82,9 82,4 83,0
Hlutfall starfandi 77,3 77,9 78,7 79,7 78,7 79,6
Atvinnuleysi 4,4 4,1 4,7 3,9 4,5 4,1
Vinnustundir 40,0 40,2 39,8 39,9 39,9 40,1
Vinnuafl 186.400 188.900 192.200 191.800 192.300 193.700
Starfandi 178.200 181.200 183.200 184.400 183.700 185.700
Atvinnulausir 8.200 7.700 9.000 7.400 8.700 8.000
Utan vinnumarkaðar 44.200 43.700 40.700 39.600 41.000 39.600
Áætlaður mannfjöldi 230.600 232.600 232.900 231.400 233.300 233.200
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  des.14 jan.15 feb.15 mar.15 apr.15 maí.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 82,0 82,0 82,2 82,3 82,4
Hlutfall starfandi 78,4 78,4 78,5 78,7 78,9 78,9
Atvinnuleysi 4,5 4,4 4,3 4,3 4,2 4,2
Vinnustundir 40,1 40,0 40,0 40,0 40,0 40,0
Vinnuafl 189.300 189.800 190.800 191.600 192.200 192.400
Starfandi 180.800 181.500 182.500 183.500 184.000 184.200
Atvinnulausir 8.500 8.300 8.200 8.200 8.200 8.200
Utan vinnumarkaðar 41.500 41.800 41.800 41.500 41.200 41.000
Áætlaður mannfjöldi 230.800 231.600 232.600 233.100 233.300 233.400

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.