FRÉTT VINNUMARKAÐUR 19. APRÍL 2004

Atvinnuleysi 3,1%  
Á fyrsta ársfjórðungi 2004 voru að meðaltali 4.800 manns atvinnulausir eða 3,1% vinnuaflsins samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Atvinnuleysi var 3,4% hjá körlum en 2,7% hjá konum.
     Á fyrsta ársfjórðungi 2003 mældist atvinnuleysi 3,9% og voru að meðaltali 6.100 manns atvinnulausir. Atvinnuleysi var 4,5% hjá körlum en 3,2% hjá konum.
     Frá fyrsta ársfjórðungi 2003 til fyrsta ársfjórðungs 2004 fækkaði atvinnulausum um 1.300 manns.
     Atvinnuleysi í yngsta aldurshópnum var 8,4% á fyrsta ársfjórðungi 2004 en 8,6% á fyrsta ársfjórðungi 2003.

Starfandi fólk 152.300 og atvinnuþátttaka 79,2%
Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2004 mældist 152.300 manns. Á vinnumarkaði voru alls 157.100 manns sem jafngildir 79,2% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 82,8% en kvenna 75,6%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og þeir sem eru atvinnulausir.
     Á fyrsta ársfjórðungi 2003 var fjöldi starfandi 151.800 en á vinnumarkaði voru alls 157.900 manns sem jafngildir 80,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,6% en kvenna 76,5%.
     Starfandi fólki fjölgaði um 500 manns frá fyrsta ársfjórðungi 2003 til fyrsta ársfjórðungs 2004, en á sama tíma fækkaði fólki á vinnumarkaði um 800 manns.

Vinnutími 40,9 klst. á viku
Fjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni hélst óbreyttur frá fyrsta ársfjórðungi 2003 til fyrsta ársfjórðungs 2004, eða 40,9 klst.
     Á fyrsta ársfjórðungi 2004 reyndist fjöldi vinnustunda vera 45,7 klst. hjá körlum en 35,5 klst. hjá konum.
     Á fyrsta ársfjórðungi 2003 var fjöldi vinnustunda í viðmiðunarviku 46,2 klst. hjá körlum og 35,1 hjá konum.

Framkvæmd vinnumarkaðsrannsóknar
Fyrsti ársfjórðungur 2004 nær til 13 vikna, frá 29. desember 2003 til 28. mars 2004. Heildarúrtakið var 3.929 manns á aldrinum 16-74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir, sem voru látnir eða búsettir erlendis, reyndist nettóúrtakið vera 3.826 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.164 einstaklingum sem jafngildir 82,7% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Skekkjumörk á niðurstöðum um atvinnuleysi eru ± 0,8%.
     Frá og með janúar 2003 hóf Hagstofan ársfjórðungslegar vinnumarkaðsrannsóknir. Rannsóknin er samfelld þannig að hverju ársfjórðungsúrtaki er skipt jafnt á 13 vikur. Á árunum 1991-2002 náði rannsóknin einungis til sinnar hvorrar vikunnar í apríl og nóvember ár hvert. Í tengslum við þessar breytingar fór fram umfangsmikil endurskoðun á spurningum, hugtökum og aðferðafræði. Endurskoðunin var gerð jafnt til að aðlaga rannsóknina að reglum Evrópska efnahagssvæðisins og til að svara kröfum um betri upplýsingar um íslenskan vinnumarkað. Af þessum breytingum leiðir að rannsóknarniðurstöður frá og með 2003 eru ekki fyllilega sambærilegar við fyrri niðurstöður. Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu skilgreiningum og vigtunaraðferðum.

Helstu skilgreiningar og aðferð við vigtun

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.