FRÉTT VINNUMARKAÐUR 20. APRÍL 2005

Atvinnuleysi 3,0% 
Á fyrsta ársfjórðungi 2005 voru að meðaltali 4.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 3,0% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 3,4% hjá körlum en 2,5% hjá konum. Atvinnuleysið var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 9,3%.
       Á fyrsta ársfjórðungi 2004 mældist atvinnuleysi 3,1%. Atvinnuleysi karla var þá 3,4% en 2,7% hjá konum. Atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16-24 ára mældist 8,4%.

Starfandi fólk 155.800 og atvinnuþátttaka 79,8%
Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2005 var 155.800 manns sem er fjölgun um 3.600 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 160.600 manns sem jafngildir 79,8% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 82,7% en kvenna 77,0%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.
       Á fyrsta ársfjórðungi 2004 mældist atvinnuþátttaka 78,9%, 82,4% hjá körlum og 75,4% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði hefur því fjölgað um 3.500 manns frá fyrsta fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári, mest í aldurshópnum 16-24 ára.

Vinnutími 40,7 klst. á viku
Á fyrsta ársfjórðungi 2005 var meðalfjöldi vinnustunda 40,7 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 46,6 klst. hjá körlum en 34,0 klst. hjá konum.
       Á fyrsta ársfjórðungi 2004 var fjöldi vinnustunda 40,9 klst., 45,8 hjá körlum en 35,5 klst. hjá konum. 

Hlutfall námsmanna sem vinna með námi 59,6%
Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókninni var fjöldi námsmanna 16 ára og eldri 39.400 á fyrsta ársfjórðungi 2005 og unnu 59,6% þeirra jafnhliða námi. Námsmönnum sem vinna með námi fjölgaði um 1.200 frá fyrsta ársfjórðungi 2004, úr 22.300 í 23.500 og var sú fjölgun einungis meðal kvenna.
       Á fyrsta ársfjórðungi 2005 var meðalfjöldi vinnustunda 26,9 klst. hjá námsmönnum sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 33,2 klst. hjá körlum en 22,5 klst. hjá konum.
       Til námsmanna teljast allir þeir sem eru í skóla innan hins almenna skólakerfis, á námssamningi eða í starfsþjálfun síðustu 4 vikurnar á undan könnunarviku, eða stunda vinnu með námi í viðmiðunarvikunni.

Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan stundað samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Fyrsti ársfjórðungur 2005 nær til 13 vikna, frá 3. janúar til 3. apríl 2005. Heildarúrtakið var 3.922 manns á aldrinum 16-74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir, sem voru látnir eða búsettir erlendis, reyndist nettóúrtakið vera 3.817 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.112 einstaklingum sem jafngildir 81,5% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Skekkjumörk á niðurstöðum um atvinnuleysi eru ± 0,8%.

Helstu skilgreiningar og aðferð við vigtun

Talnaefni 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.