Atvinnuleysi 2,4%
Á fyrsta ársfjórðungi 2006 voru að meðaltali 4.000 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,2% hjá körlum en 2,5% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 7,7%.
Á fyrsta ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi 3,0%. Atvinnuleysi karla var þá 3,4% en 2,5% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 9,3%.
Starfandi fólk 163.500 og atvinnuþátttaka 81,1%
Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2006 var 163.500 manns og fjölgaði um 7.700 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 167.500 manns sem jafngildir 81,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 84,6% en kvenna 77,5%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.
Á fyrsta ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuþátttaka 79,8%. Hjá körlum var atvinnuþátttaka 82,7% en 77,0% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 6.900 manns frá fyrsta fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári.
Vinnutími 41,2 klst. á viku
Á fyrsta ársfjórðungi 2006 var meðalfjöldi vinnustunda 41,2 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 46,2 klst. hjá körlum en 35,2 klst. hjá konum.
Á fyrsta ársfjórðungi 2005 var fjöldi vinnustunda 40,7 klst., 46,6 klst. hjá körlum en 34,0 klst. hjá konum.
Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Fyrsti ársfjórðungur 2006 nær til 13 vikna, frá 2. janúar til 2. apríl 2006. Heildarúrtakið var 3.920 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.802 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.095 einstaklingum sem jafngildir 81,4% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri