FRÉTT VINNUMARKAÐUR 18. APRÍL 2007


Atvinnuleysi 2%
Á fyrsta ársfjórðungi 2007 voru að meðaltali 3.500 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2% bæði hjá körlum og konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,9%.

Á fyrsta ársfjórðungi 2006 mældist atvinnuleysi 2,4%. Atvinnuleysi karla var þá 2,2% en 2,5% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 7,7%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.

39,6% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 15,1% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar
Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2007 voru 500 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 15,1%, 1.400 manns eða 39,6% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu og 600 manns, eða 17,8% voru búnir að leita lengur en 6 mánuði.

Tafla 1.  Atvinnulausir eftir lengd atvinnuleitar        
1. ársfj. 2004 1. ársfj. 2005 1. ársfj. 2006 1. ársfj. 2007
  Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
Atvinnulausir 4.800 100,0 4.800 100,0 4.000 100,0 3.500 100,0
Búinn að fá vinnu sem hefst síðar 200* 3,8* 300* 7,1* 500* 12,8* 500* 15,1*
Innan við einn mánuður 1.500 31,0 1.400 28,6 2.000 50,5 1.400 39,6
1-2 mánuðir 1.700 35,1 1.300 27,1 600* 16,1* 700* 20,5*
3-5 mánuðir 600* 12,8* 600* 12,8* 400* 9,2* 200* 7,1*
6 mánuðir eða lengur 800* 17,2* 1.200 24,4 500* 11,4* 600* 17,8*

Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað   

* frávikshlutfall yfir 20%

Starfandi fólki fjölgaði um 9.300 og atvinnuþátttakan var 82,2%
Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2007 var 172.800 manns og fjölgaði um 9.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 176.300 manns sem jafngildir 82,2% atvinnuþátttöku.

Atvinnuþátttaka karla var 86,2% en kvenna 77,9%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fyrsta ársfjórðungi 2006 mældist atvinnuþátttaka 81,1%. Hjá körlum var atvinnuþátttaka 84,6% en 77,5% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 8.800 manns frá fyrsta fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári, mest í aldurshópnum 25-54 ára eða um 6.100 manns.

Vinnutími 41,5 klst. á viku
Á fyrsta ársfjórðungi 2007 var meðalfjöldi vinnustunda 41,5 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 47,1 klst. hjá körlum en 34,7 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 47,3 klst., 50,2 klst. hjá körlum en 42 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 23,5 klst., 21,5 klst. hjá körlum en 24,1 klst. hjá konum.

Á fyrsta ársfjórðungi 2006 var fjöldi vinnustunda 41,2 klst., 46,3 klst. hjá körlum en 35,2 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,2 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu 23,8 klst.

Tafla 2.  Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi
    1. ársfjórðungur
      2003 2004 2005 2006 2007
Atvinnuþátttaka

Hlutfallstölur

80,1 78,9 79,8 81,1 82,2
Atvinnuleysi

Hlutfallstölur

3,9 3,1 3,0 2,4 2,0
Vinnuafl Áætlaður fjöldi 157.900 157.100 160.600 167.500 176.300

Starfandi

Áætlaður fjöldi 151.800 152.300 155.800 163.500 172.800

Atvinnulausir

Áætlaður fjöldi 6.100 4.800 4.800 4.000 3.500
Starfandi í fullu starfi Áætlaður fjöldi 113.100 114.500 116.500 120.400 128.200
Starfandi í hlutastarfi Áætlaður fjöldi 38.700 37.800 39.300 43.200 44.700
Heildarvinnutími Klukkustundir 40,9 40,9 40,7 41,2 41,5
Vinnutími í fullu starfi Klukkustundir 46,9 46,7 46,3 47,2 47,3
Vinnutími í hlutastarfi Klukkustundir 23,0 23,1 23,0 23,8 23,5
Utan vinnumarkaðar Áætlaður fjöldi 39.300 42.000 40.500 39.100 38.300

Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Fyrsti ársfjórðungur 2007 nær til 13 vikna, frá 1. janúar til 1. apríl. Heildarúrtakið var 3.913 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.820 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.167 einstaklingum sem jafngildir 82,9% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuleysi eru ± 0,8%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.