FRÉTT VINNUMARKAÐUR 14. JÚLÍ 2004

Atvinnuleysi 4,0% 
Á öðrum ársfjórðungi 2004 voru að meðaltali 6.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4,0% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,2% hjá körlum en 2,7% hjá konum. Atvinnuleysið var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 11,9%.
       Á öðrum ársfjórðungi 2003 mældist atvinnuleysi 4,1%. Atvinnuleysi karla var þá 4% en 4,1% hjá konum. Atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16-24 ára mældist 12,2%.

Starfandi fólk 158.000 og atvinnuþátttaka 82,9%
Fjöldi starfandi á öðrum ársfjórðungi 2004 var 158.000 manns sem er fækkun um 1.800 manns frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls að meðaltali 164.600 manns sem jafngildir 82,9% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 87,8% en kvenna 78,0%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.
       Á öðrum ársfjórðungi 2003 mældist atvinnuþátttaka 84,1%, 88,5% hjá körlum og 79,6% hjá konum. Vinnuaflinu hefur því fækkað um 2.000 manns milli ára.

Vinnutími 42,2 klst. á viku
Á öðrum ársfjórðungi var fjöldi vinnustunda 42,2 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni. Fjöldi vinnustunda reyndist vera 47,4 klst. hjá körlum en hjá 36,0 klst. hjá konum.
       Á öðrum ársfjórðungi 2003 var meðalfjöldi vinnustunda 41,9 klst., 46,6 klst. hjá körlum og 35,9 klst. hjá konum. 

Framkvæmd
Annar ársfjórðungur 2004 nær til 13 vikna, frá 29. mars til 27. júní. Heildarúrtakið var 3.965 manns á aldrinum 16-74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir, sem voru látnir eða búsettir erlendis, reyndist nettóúrtakið vera 3.852 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.110 einstaklingum sem jafngildir 80,7% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Skekkjumörk á niðurstöðum um atvinnuleysi eru ± 0,8%.
       Frá og með janúar 2003 hóf Hagstofan ársfjórðungslegar vinnumarkaðsrannsóknir. Rannsóknin er samfelld þannig að hverju ársfjórðungsúrtaki er skipt jafnt á 13 vikur. Á árunum 1991-2002 náði rannsóknin einungis til sinnar hvorrar vikunnar í apríl og nóvember ár hvert. Í tengslum við þessar breytingar fór fram umfangsmikil endurskoðun á spurningum, hugtökum og aðferðafræði. Endurskoðunin var gerð jafnt til að aðlaga rannsóknina að reglum Evrópska efnahagssvæðisins og til að svara kröfum um betri upplýsingar um íslenskan vinnumarkað. Af þessum breytingum leiðir að rannsóknarniðurstöður frá og með 2003 eru ekki fyllilega sambærilegar við fyrri niðurstöður. Ítarleg greinagerð um aðferðir og hugtök, ásamt samanburði við eldri aðferðir verður birt síðar á vefsetri Hagstofunnar. Hér á eftir er þó gerð grein fyrir helstu skilgreiningum og vigtunaraðferðum.

Helstu skilgreiningar og aðferð við vigtun

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.