FRÉTT VINNUMARKAÐUR 19. JÚLÍ 2007


Atvinnuleysi 3,2%
Á öðrum ársfjórðungi 2007 voru að meðaltali 5.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 3,2% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 3,4% hjá körlum og 2,8% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 10,2%.

Á öðrum ársfjórðungi 2006 mældist atvinnuleysi 4%. Atvinnuleysi karla var þá 3,9% en 4,1% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 12,7%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.

32,3% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 33,1% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar
Af þeim sem voru atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2007 voru 1.900 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 33,1%, 1.900 manns eða 32,3% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu. Af þeim sem voru atvinnulausir höfðu 600 manns, eða 9,9% leitað að vinnu í 6 mánuði eða lengur.
 

Tafla 1.  Atvinnulausir eftir lengd atvinnuleitar        
2. ársfj. 2004 2. ársfj. 2005 2. ársfj. 2006 2. ársfj. 2007
  Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
Atvinnulausir 6.600 100,0 5.000 100,0 7.200 100,0 5.800 100,0
Búinn að fá vinnu sem hefst síðar 1.400 21,0 1.500 28,9 2.000 28,5 1.900 33,1
Innan við einn mánuður 2.100 31,0 1.400 28,5 2.800 38,6 1.900 32,3
1-2 mánuðir 1.100 16,8 900 17,0 1.200 16,7 900 15,4
3-5 mánuðir 700 10,5 500 9,1 400* 5,9* 500 9,3
6 mánuðir eða lengur 1.400 20,7 800 16,5 700 10,3 600 9,9
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað
* frávikshlutfall yfir 20%

Starfandi fólki fjölgaði um 7.500 og atvinnuþátttakan var 85,1%
Fjöldi starfandi á öðrum ársfjórðungi 2007 var 179.100 manns og fjölgaði um 7.500 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 185.000 manns sem jafngildir 85,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 89,1% og kvenna 80,7% Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á öðrum ársfjórðungi 2006 mældist atvinnuþátttaka 85,1%. Hjá körlum var atvinnuþátttaka 89,8% en 80,1% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 7.800 manns frá öðrum fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári. Samtals á vinnumarkaði voru 178.700 manns.

Vinnutími 41,5 klst. á viku
Á öðrum ársfjórðungi 2007 var meðalfjöldi vinnustunda 42,1 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 47,4 klst. hjá körlum en 35,6 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 46,6 klst., 49,4 klst. hjá körlum en 41,6 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 24,8 klst., 24,3 klst. hjá körlum en 24,9 klst. hjá konum.

Á öðrum ársfjórðungi 2006 var fjöldi vinnustunda 42,1 klst., 47,3 klst. hjá körlum en 35,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 46,1 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu 25,8 klst.

Tafla 2.  Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi
    2. ársfjórðungur
      2004 2005 2006 2007
Atvinnuþátttaka Hlutfallstölur 82,6 83,5 85,1 85,1
Atvinnuleysi Hlutfallstölur 4,0 3,0 4,0 3,2
Vinnuafl Áætlaður fjöldi 164.600 168.900 178.700 185.000
Starfandi Áætlaður fjöldi 158.000 163.800 171.600 179.100
Atvinnulausir Áætlaður fjöldi 6.600 5.000 7.200 5.800
Starfandi í fullu starfi Áætlaður fjöldi 125.800 131.300 135.500 141.500
Starfandi í hlutastarfi Áætlaður fjöldi 32.100 32.500 36.100 37.700
Heildarvinnutími Klukkustrundir 42,2 43,1 42,1 42,1
Vinnutími í fullu starfi Klukkustundir 46,5 47,3 46,1 46,6
Vinnutími í hlutastarfi Klukkustundir 24,7 25,0 25,8 24,8
Utan vinnumarkaðar Áætlaður fjöldi 34.700 33.400 31.400 32.500

Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Annar ársfjórðungur 2007 nær til 13 vikna, frá 2. apríl til 1. júlí. Heildarúrtakið var 3.884 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.810 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.083 einstaklingum sem jafngildir 80,9% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuleysi eru ± 0,7%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.