Atvinnuleysi 2,6%
Á þriðja ársfjórðungi 2006 voru að meðaltali 4.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,2% hjá körlum en 3,0% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 5,1%.
Á þriðja ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi 1,8%. Atvinnuleysi karla var þá 1,2% en 2,4% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 3,5%.
Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.
40,5% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 30,4% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar
Af þeim sem voru atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2006 voru 1.400 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 30,4%, 1.900 manns eða 40,5% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu og 700 manns, eða 15,4% voru búnir að leita lengur en 6 mánuði.
Tafla 1. Atvinnulausir eftir lengd atvinnuleitar | ||||||||
3. ársfj. 2003 | 3. ársfj. 2004 | 3. ársfj. 2005 | 3. ársfj. 2006 | |||||
Fjöldi | % | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Fjöldi | % | |
Atvinnulausir | 4.400 | 100,0 | 4.300 | 100,0 | 2.900 | 100,0 | 4.600 | 100,0 |
Búinn að fá vinnu sem hefst síðar | 600* | 14,1* | 500* | 12,7* | 500* | 15,3* | 1.400 | 30,4 |
Innan við einn mánuður | 1.100 | 25,9 | 1.700 | 40,1 | 1.200 | 40,5 | 1.900 | 40,5 |
1 - 2 mánuðir | 800* | 19,0* | 1000 | 22,8 | 400* | 12,6* | 300* | 6,9* |
3 til 5 mánuðir | 600* | 14,7* | 300* | 7,5* | 300* | 9,4* | 300* | 6,9* |
6 mánuðir eða lengur | 1.100 | 26,3 | 700* | 16,9* | 700* | 22,2* | 700* | 15,4* |
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað. |
Starfandi fólki fjölgaði um 9.300 og atvinnuþátttakan var 84,2%
Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2006 var 173.300 manns og fjölgaði um 9.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 177.900 manns sem jafngildir 84,2% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 88,8% en kvenna 79,2%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.
Á þriðja ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuþátttaka 83,1%. Hjá körlum var atvinnuþátttaka 88,3% en 77,7% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 10.900 manns frá þriðja fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári, mest í aldurshópnum 25-54 ára eða um 7.900 manns.
Vinnutími 44,1 klst. á viku
Á þriðja ársfjórðungi 2006 var meðalfjöldi vinnustunda 44,1 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 48,4 klst. hjá körlum en 38,2 klst. hjá konum.
Á þriðja ársfjórðungi 2005 var fjöldi vinnustunda 43,8 klst., 48,6 klst. hjá körlum en 37,4 klst. hjá konum.
Tafla 2. Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi | ||||||
3. ársfj. 2003 | 3. ársfj. 2004 | 3. ársfj. 2005 | 3. ársfj. 2006 | |||
Atvinnuþátttaka | Hlutfallstölur | 84,3 | 81,5 | 83,1 | 84,2 | |
Atvinnuleysi | Hlutfallstölur | 2,6 | 2,6 | 1,8 | 2,6 | |
Vinnuafl | Áætlaður fjöldi | 167.300 | 162.300 | 167.000 | 177.900 | |
Starfandi | Áætlaður fjöldi | 162.900 | 158.000 | 164.000 | 173.300 | |
Atvinnulausir | Áætlaður fjöldi | 4.400 | 4.300 | 2.900 | 4.600 | |
Utan vinnumarkaðar | Áætlaður fjöldi | 31.100 | 36.800 | 34.000 | 33.500 | |
Heildarvinnutími | Klukkustundir | 42,9 | 43,7 | 43,8 | 44,1 |
Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Þriðji ársfjórðungur 2006 nær til 13 vikna, frá 3. júlí til 1. október 2006. Heildarúrtakið var 3.910 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.801 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.132 einstaklingum sem jafngildir 82,4% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuleysi eru ± 0,7%.