FRÉTT VINNUMARKAÐUR 15. OKTÓBER 2008


Atvinnuleysi 2,5%
Á þriðja ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 4.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,6% hjá körlum og mjög svipað eða 2,5% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 4,8%.

Á þriðja ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 2,1%. Atvinnuleysi mældist þá 1,6% hjá körlum og 2,7% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 5,2%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar, sem eru ekki í vinnu en eru í námi, flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

 

33,5% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 20,3% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar
Af þeim sem voru atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2008 voru nær 1.000 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 20,3%. Tæp 1.600 manns eða 33,5% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu. Af þeim sem voru atvinnulausir höfðu um 300 manns, eða 5,7% leitað að vinnu í 6 mánuði eða lengur.

Tafla 1.  Atvinnulausir á 3. ársfjórðungi eftir lengd atvinnuleitar
2005 2006 2007 2008
  Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
Atvinnulausir 3.000 100,0 4.600 100,0 3.900 100,0 4.800 100,0
Búinn að fá vinnu sem hefst síðar 500* 15,3* 1.400 30,4 1.000 24,7 1.000 20,3
Innan við einn mánuður 1.200 40,5 1.900 40,5 1.600 42,5 1.600 33,5
1-2 mánuðir 400* 12,6* 300* 6,9* 700* 19,0* 1.600 32,9
3-5 mánuðir 300* 9,4* 300* 6,9* 200* 5,1* 400* 7,6*
6 mánuðir eða lengur 700* 22,2* 700* 15,4* 300* 8,6* 300* 5,7*
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.
* frávikshlutfall yfir 20%

Starfandi fólk 183.800 og atvinnuþátttakan var 83,8%
Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2008 var um 183.800 manns eða 81,7%. Á vinnumarkaði voru um 188.500 manns sem jafngildir 83,8% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 88,2% og kvenna 79,0%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.
Á þriðja ársfjórðungi 2007 voru um 184.700 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 84,1%. Atvinnuþátttaka karla var 88,2% og kvenna 79,6%.

 

Vinnutími 43,6 klst. á viku
Á þriðja ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 43,6 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 48,2 klst. hjá körlum en 37,3 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 47,1 klst., 49,8 klst. hjá körlum en 42,5 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 25,4 klst., 24,4 klst. hjá körlum en 25,7 klst. hjá konum.

Á þriðja ársfjórðungi 2007 var fjöldi vinnustunda 43,3 klst., 47,6 klst. hjá körlum en 37,4 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,1 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 26,0 klst.

Tafla 2.  Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 3. ársfjórðungi
    2005 2006 2007 2008 2008
    3. ársfj. 3. ársfj. 3. ársfj. 3. ársfj. Vikmörk ±
Atvinnuþátttaka Hlutfallstölur 83,1 84,2 84,1 83,8 1,1
Hlutfall starfandi Hlutfallstölur 81,6 82,0 82,3 81,7 1,2
Atvinnuleysi Hlutfallstölur 1,8 2,6 2,1 2,5 0,6
Vinnuafl Áætlaður fjöldi 167.000 177.900 184.700 188.500 2.600
Starfandi Áætlaður fjöldi 164.000 173.300 180.900 183.800 2.800
Atvinnulausir Áætlaður fjöldi 2.900 4.600 3.800 4.800 1.100
Starfandi í fullu starfi Áætlaður fjöldi 132.300 140.300 145.000 151.900 2.500
Starfandi í hlutastarfi Áætlaður fjöldi 31.700 33.000 35.800 31.910 2.500
Heildarvinnutími Klukkustundir 43,8 44,1 43,3 43,6 0,6
Vinnutími í fullu starfi Klukkustundir 48,1 47,9 47,1 47,1 0,6
Vinnutími í hlutastarfi Klukkustundir 24,7 26,6 26,0 25,4 1,4
Utan vinnumarkaðar Áætlaður fjöldi 34.000 33.500 35.000 36.500 2.600
Mannfjöldi Áætlaður fjöldi 201.000 211.400 219.800 225.000  
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Þriðji  ársfjórðungur 2008 nær til 13 vikna, frá 30. júní til 28. september. Heildarúrtakið var 3.928 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.846 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.116 einstaklingum sem jafngildir 81,0% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ± 1,1%, atvinnuleysi ± 0,6% og vinnutíma ± 0,6 klukkustund.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.