FRÉTT VINNUMARKAÐUR 16. JANÚAR 2008


Atvinnuleysi 1,9%

Á fjórða ársfjórðungi 2007 voru að meðaltali 3.500 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 1,9% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,1% hjá körlum og 1,8% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,2%.

Á fjórða ársfjórðungi 2006 mældist atvinnuleysi 2,5% og var það sama hjá körlum og konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 7%.
Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.

 

52% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 13,5% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar
Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2007 voru 500 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 13,5%, 1.800 manns eða 52% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu. Af þeim sem voru atvinnulausir höfðu 300 manns, eða 8,5% leitað að vinnu í 6 mánuði eða lengur.

Tafla 1.  Atvinnulausir eftir lengd atvinnuleitar        
4. ársfj. 2004 4. ársfj. 2005 4. ársfj. 2006 4. ársfj. 2007
  Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
Atvinnulausir 4.000 100,0 4.400 100,0 4.300 100,0 3.500 100,0
Búinn að fá vinnu sem hefst síðar 300* 8,2* 700* 16,2* 900* 19,8* 500* 13,5*
Innan við einn mánuður 1.200 29,3 2.100 46,3 1.900 44,7 1.800 52,0
1-2 mánuðir 900* 21,4* 800* 18,7* 700* 15,0* 600* 16,3*
3-5 mánuðir 700* 16,4* 300* 7,8* 200* 5,6* 300* 9,6*
6 mánuðir eða lengur 1.000 24,6 500* 11,0* 600* 14,9* 300* 8,5*
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.
* frávikshlutfall yfir 20%

Starfandi fólki fjölgaði um 6.400 og atvinnuþátttakan var 81,7%
Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2007 var 176.300 manns og fjölgaði um 6.400 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 179.800 manns sem jafngildir 81,7% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 86,7% og kvenna 76,4% Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fjórða ársfjórðungi 2006 voru alls 174.300 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 82,1%. Atvinnuþátttaka karla var 86,8% og kvenna 77%.

 

Vinnutími 40,8 klst. á viku
Á fjórða ársfjórðungi 2007 var meðalfjöldi vinnustunda 40,8 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá körlum en 35 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 46,1 klst., 48,5 klst. hjá körlum en 42 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 23 klst., 21,8 klst. hjá körlum en 23,5 klst. hjá konum.

Á fjórða ársfjórðungi 2006 var fjöldi vinnustunda 42,2 klst., 48 klst. hjá körlum en 35,1 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,8 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23,8 klst.

Tafla 2.  Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi
    4. ársfjórðungur
      2004 2005 2006 2007
Atvinnuþátttaka Hlutfallstölur 79,7 81,3 82,1 81,7
Atvinnuleysi Hlutfallstölur 2,5 2,7 2,5 1,9
Vinnuafl Áætlaður fjöldi 160.300 165.900 174.300 179.800
Starfandi Áætlaður fjöldi 156.300 161.500 169.900 176.300
Atvinnulausir Áætlaður fjöldi 4.000 4.400 4.300 3.500
Starfandi í fullu starfi Áætlaður fjöldi 117.500 119.000 129.300 134.600
Starfandi í hlutastarfi Áætlaður fjöldi 38.800 42.400 40.600 41.700
Heildarvinnutími Klukkustundir 41,3 41,6 42,2 40,8
Vinnutími í fullu starfi Klukkustundir 46,8 47,6 47,8 46,1
Vinnutími í hlutastarfi Klukkustundir 24,1 23,9 23,8 23,0
Utan vinnumarkaðar Áætlaður fjöldi 40.700 38.100 38.100 40.200
Mannfjöldi Áætlaður fjöldi 201.000 204.000 212.300 220.000

Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Fjórði ársfjórðungur 2007 nær til 13 vikna, frá 1. október til 30. desember. Heildarúrtakið var 3.870 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.794 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.093 einstaklingum sem jafngildir 81,5% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuleysi eru ± 0,5%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.