TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 10. JÚLÍ 2024

Hagstofan birtir nýja færnispá fyrir vinnumarkaðinn fyrir árin 2023-2038. Spáin gefur upplýsingar um áætlaða þróun framboðs og eftirspurnar vinnuafls eftir menntunarflokkum og atvinnugreinum. Hún er hér birt sem talnaefni, en til viðbótar því mun myndræn framsetning spárinnar verða birt í lok sumars. Lýsingu á aðferðafræði spárinnar er að finna í lýsigögnum.

Í línuritinu hér að neðan má sjá heildarframboð og heildareftirspurn eftir vinnuafli, bæði sögulegar tölur og spá. Í meðfylgjandi talnaefni má finna niðurstöður eftir menntunarflokkum og atvinnugreinum.

Tilraunatölfræði

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.