Alls voru 6.440 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á fyrsta ársfjórðungi 2022 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 209.700 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 3,0% (sjá öryggisbil í töflu).
Laus störf voru rúmlega 1.000 fleiri á fyrsta ársfjórðungi 2022 en á fjórða ársfjórðungi 2021 og hækkaði hlutfall lausra starfa um 0,5 prósentustig á tímabilinu. Sé horft til fyrsta ársfjórðungs 2021 voru laus störf 2.200 fleiri nú og hækkaði hlutfall lausra starfa um 0,8 prósentustig á milli ára.
Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn á meðal íslenskra lögaðila. Þýðið nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu. Valið er í úrtak einu sinni á ári í byrjun hvers árs á grundvelli fyrirtækjaskrár ársins á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 var 15. febrúar og svarhlutfall var 92%.
Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum Hagstofu Íslands sem sífellt eru í endurskoðun og uppfærslu. Til að koma í veg fyrir óþarfa flökt og breytingar í tímaröðinni eru tölur um fjölda mannaðra starfa festar þegar tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili talnanna. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.
Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.