FRÉTT VINNUMARKAÐUR 11. MAÍ 2023

Alls voru 7.550 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á fyrsta ársfjórðungi 2023 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 221.700 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 3,3% (sjá öryggisbil í töflu). Til samanburðar töldust að meðaltali 8.400 einstaklingar atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2023 eða um 3,8% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Samanburður við fyrsta ársfjórðung 2022 sýnir að þrátt fyrir aukningu í fjölda lausra starfa um 120 á milli ára fjölgaði mönnuðum störfum hlutfallslega meira og því dróst hlutfall lausra starfa saman um 0,1 prósentustig.

Hlutfallsleg eftirspurn eftir starfsfólki var mest á meðal rekstraraðila í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum. Laus störf í atvinnugreininni voru 390 talsins og hlutfall lausra starfa 6,3%. Lausum störfum fjölgaði um 310 í atvinnugreininni á milli ára og hlutfall lausra starfa jókst um 4,9 prósentustig. Hlutfallsleg eftirspurn eftir starfsfólki var einnig mikil í atvinnugreininni byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem laus störf voru 950 talsins og hlutfall lausra starfa 5,6%. Lausum störfum í atvinnugreininni fækkaði þó töluvert á milli ára eða um 240 störf og dróst hlutfall lausra starfa saman um 2,1 prósentustig.

Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Valið er í úrtak einu sinni á ári í byrjun hvers árs á grundvelli fyrirtækjaskrár Hagstofu Íslands ársins á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir fyrsta ársfjórðung 2023 var 15. febrúar 2023. Alls fengust 573 svör og var svarhlutfall 95%.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum sem eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanleg lýsing á þýðistölum. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.