Niðurstöður starfaskráningar Hagstofunnar benda til þess að um 6.200 störf hafi verið laus á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2019 en á sama tíma hafi um 226.200 störf verið mönnuð. Hlutfall lausra starfa var því rétt um 2,7%. Um er að ræða aukningu frá fyrsta ársfjórðungi þegar fjöldi lausra starfa var 3.500 og hlutfall lausra starfa var um 1,5%. Í ljósi þess að árstíðarbundnar sveiflur eru á íslenskum vinnumarkaði má leiða að því líkum að aukningin skýrist að hluta af sumarstörfum.
Um er að ræða bráðabirgðatölur byggðar á gögnum úr starfaskráningu Hagstofunnar sem er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn meðal lögaðila.
Mæling | Gildi1 | Staðalvilla2 | Neðri mörk3 | Efri mörk3 |
Fjöldi lausra starfa | 6.200 | 900 | 4.300 | 8.100 |
Fjöldi starfa | 226.200 | 9.300 | 207.900 | 244.500 |
Hlutfall lausra starfa | 2,7% | 0,4% | 1,9% | 3,5% |
1Talningar eru námundaðar að næsta hundraði eða næsta þúsundi.
2Staðalvilla mælingar vísar til breytileika í mælingu milli úrtaka.
3Neðri og efri vikmörk mælinga vísa til spannar öryggisbilsins í kringum meðaltalið. Í endurteknum úrtökum mun þýðistalan falla innan öryggisbilsins í 95% tilvika.
Um gögnin
Meginmarkmið starfaskráningar Hagstofunnar er að safna upplýsingum um fjölda lausra starfa og fjölda starfsmanna hjá lögaðilum sem greiða laun á Íslandi. Starfaskráning (e. Job Vacancy Survey) er framkvæmd í samræmi við reglugerð nr. 453/2008 sem er í gildi á Evrópska efnahagssvæðinu. Tölur eru þannig samanburðarhæfar við tölur um laus störf innan Evrópu.
Starfaskráningin er framkvæmd ársfjórðungslega á fyrirfram ákveðnum tímapunkti sem jafnan er um miðbik hvers ársfjórðungs. Á öðrum ársfjórðungi 2019 var viðmiðunardagur fyrir laus störf 15. maí og er sá dagur því álitinn dæmigerður fyrir ársfjórðunginn. Þýði rannsóknarinnar nær til allra lögaðila á íslenskum vinnumarkaði sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu. Úrtak starfaskráningar er tekið einu sinni á ári í byrjun árs og eru lögaðilar valdir með slembivali kennitalna úr fyrirtækjaskrá Hagstofunnar.
Við gerð úrtaks voru atvinnurekendur flokkaðir í fjóra stærðarflokka (9 eða færri starfmenn, 10-49 starfsmenn, 50-249 starfsmenn, 250 starfsmenn eða fleiri) og tíu ISAT 2008 atvinnugreinabálka ([A], [B, C, D, E], [F], [G, H, I], [J], [K], [L], [M, N], [O, P, Q], [R, S]). Úrtakið var því næst valið eftir stærð fyrirtækisins innan atvinnugreinabálks þar sem atvinnurekendur með 250 starfsmenn og fleiri (stórir atvinnurekendur) fengu úrtakslíkurnar 1 og minnkandi úrtakslíkur eftir stærð fyrirtækja. Þessi úrtaksaðferð felur í sér að úrtak miðlungs stórra, lítilla og öratvinnurekenda er endurnýjað á hverju ári, en lögaðilar sem tilheyra hópi stærstu lögaðilanna eru alltaf hluti af úrtaki starfaskráningar. Í úrtak starfaskráningar á öðrum ársfjórðungi 2019 völdust 608 lögaðilar.
Gögnum var safnað á tímabilinu 16. maí til 18. júní 2019 með vefskráningarformi. Þegar frá eru taldir lögaðilar sem höfðu verið afskráðir eða runnið saman við aðrar skipulagsheildir reyndist nettóúrtakið vera 601 lögaðili. Af þeim svöruðu 556 sem gerir 95% svarshlutfall. Við úrvinnslu eru gögn vegin eftir úrtakslíkum.