FRÉTT VINNUMARKAÐUR 18. ÁGÚST 2022

Alls voru 12.240 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2022 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru 229.148 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 5,1% (sjá öryggisbil í töflu). Þetta er hæsta ársfjórðungslega mæling á hlutfalli lausra starfa frá fyrsta ársfjórðungi 2019 þegar starfaskráning Hagstofunnar hófst.

Eftirspurn var mest eftir starfsfólki í hótel- og veitingarekstri, í fiskeldi og hjá sveitarfélögunum. Hlutfall lausra starfa var hæst í atvinnugreinabálkum G-I, heildsala og verslun, samgöngur og geymslusvæði, rekstur veitinga- og gististaða, eða 9,2%. Í atvinnugreinabálki A landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar var hlutfall lausra starfa 8,8% og 8,2% í flokkum M-N ýmis sérhæfð þjónusta þar sem megnið af auglýstum störfum tengdust gæslu, þrifum og ferðaþjónustu. Hlutfall lausra starfa í einkennandi greinum ferðaþjónustu var 8,1%.

Samanburður við annan ársfjórðung 2021 sýnir að fjöldi lausra starfa jókst um 3.200 störf á milli ára, fjöldi mannaðra starfa jókst um rúmlega 21.700 og hlutfall lausra starfa um 0,9 prósentustig.


Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn á meðal íslenskra lögaðila og nær þýðið til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu. Valið er í úrtak einu sinni á ári í byrjun hvers árs á grundvelli fyrirtækjaskrár ársins á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir annan ársfjórðung 2022 var 15. maí og svarhlutfall var 98,4%.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum Hagstofu Íslands sem sífellt eru í endurskoðun og uppfærslu. Til þess að koma í veg fyrir óþarfa flökt og breytingar í tímaröðinni eru tölur um fjölda mannaðra starfa festar þegar tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili talnanna. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.