FRÉTT VINNUMARKAÐUR 22. ÁGÚST 2024

Alls voru 7.570 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2024 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru 245.257 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 3,0% (sjá öryggisbil í töflu). Lausum störfum fjölgaði um 1.360 á milli ársfjórðunga og hlutfall lausra starfa jókst um 0,4 prósentustig.

Samanburður við annan ársfjórðung 2023 sýnir að lausum störfum fjölgaði um rúmlega 1.000 störf á milli ára og hlutfall lausra starfa jókst um 0,3 prósentustig.


Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með einn eða fleiri starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Úrtakið er valið í byrjun árs á grundvelli upplýsinga úr fyrirtækjaskrá Hagstofu Íslands frá árinu á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir annan ársfjórðung 2024 var 15. maí. Alls fengust 628 svör og var svarhlutfall 90%.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum sem eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanlegar. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.