FRÉTT VINNUMARKAÐUR 12. ÁGÚST 2026

Alls voru 3.540 störf laus á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2026 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 247.560 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 1,4% (sjá öryggisbil í töflu).

Lausum störfum fjölgaði um 500 á milli ársfjórðunga og hlutfall lausra starfa hækkaði um 0,1 prósentustig. Samanburður við annan ársfjórðung 2025 sýnir að lausum störfum fækkaði um 1.870 á milli ára og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,8 prósentustig.

Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Úrtakið er valið í byrjun árs á grundvelli upplýsinga úr fyrirtækjaskrá Hagstofu Íslands frá árinu á undan.

Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir annan ársfjórðung 2026 var 15. maí. Alls fengust 622 svör og var svarhlutfall 88,6%. Niðurstöður eru bráðabirgðartölur og verða endurskoðaðar.

Um leið og nýjar tölur eru birtar fyrir annan ársfjórðung voru tölur fyrsta ársfjórðungs 2026 endurskoðaðar með leiðréttum vogum. Við endurskoðunina breyttist bæði hlutfall lausra starfa á íslenskum vinnumarkaði og hlutfall lausra starfa breyttist í einstökum atvinnugreinum. Unnið er að endurskoðun eldri tímaraða starfaskráningarinnar.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum og eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanlegar. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.