FRÉTT VINNUMARKAÐUR 10. NÓVEMBER 2022

Alls voru 8.790 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á þriðja ársfjórðungi 2022 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru 233.777 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 3,6% (sjá öryggisbil í töflu). Samanburður við þriðja ársfjórðung 2021 sýnir að fjöldi lausra starfa var mjög svipaður á milli ára. Hins vegar jókst fjöldi mannaðra starfa um 12.560 og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,2 prósentustig.

Eftirspurn eftir starfsfólki var mest í atvinnugreininni byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F) þar sem laus störf voru 1.660 talsins og hlutfall lausra starfa 9,3%. Hlutfall lausra starfa í menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi (R-S) var 6,6% og í rekstri veitinga- og gististaða (G-I) var hlutfallið 5,4%.

Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn á meðal íslenskra lögaðila og nær þýðið til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu. Valið er í úrtak einu sinni á ári í byrjun hvers árs á grundvelli fyrirtækjaskrár Hagstofu Íslands ársins á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir þriðja ársfjórðung 2022 var 15. ágúst, í úrtaki voru 603 fyrirtæki og svarhlutfall 99,1%.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum Hagstofu Íslands sem sífellt eru í endurskoðun og uppfærslu. Til þess að koma í veg fyrir óþarfa breytingar í tímaröðinni eru tölur um fjölda mannaðra starfa festar þegar tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili talnanna. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.