FRÉTT VINNUMARKAÐUR 11. DESEMBER 2024

Alls voru 6.070 störf laus á íslenskum vinnumarkaði á þriðja ársfjórðungi 2024 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 247.800 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 2,4% (sjá öryggisbil í töflu).

Lausum störfum fækkaði um 1.920 á milli ársfjórðunga og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,8 prósentustig. Samanburður við þriðja ársfjórðung 2023 sýnir að lausum störfum fækkaði um 840 á milli ára og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,4 prósentustig.

Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með einn eða fleiri starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Úrtakið er valið í byrjun árs á grundvelli upplýsinga úr fyrirtækjaskrá Hagstofu Íslands frá árinu á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir þriðja ársfjórðung 2024 var 15. ágúst. Alls fengust 613 svör og var svarhlutfall 89,5%. Niðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung 2024 eru bráðabirgðartölur og verða endurskoðaðar við birtingu fjórða ársfjórðungs 2024.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum sem eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanlegar. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.