FRÉTT VINNUMARKAÐUR 03. FEBRÚAR 2025

Alls voru 3.830 störf laus á íslenskum vinnumarkaði á fjórða ársfjórðungi 2024 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 243.300 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 1,6% (sjá öryggisbil í töflu).

Lausum störfum fækkaði um 2.230 á milli ársfjórðunga og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,8 prósentustig. Samanburður við fjórða ársfjórðung 2023 sýnir að lausum störfum fækkaði um 870 á milli ára og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,4 prósentustig.

Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Úrtakið er valið í byrjun árs á grundvelli upplýsinga úr fyrirtækjaskrá Hagstofu Íslands frá árinu á undan.

Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir fjórða ársfjórðung 2024 var 15. nóvember. Alls fengust 616 svör og var svarhlutfall 90,5%. Niðurstöður fyrir árið 2024 eru bráðabirgðartölur og verða endurskoðaðar.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum sem eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanlegar. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.