FRÉTT VINNUMARKAÐUR 30. ÁGÚST 2018

Á öðrum ársfjórðungi 2018 voru að jafnaði 200.798 starfandi á Íslandi á aldrinum 16-74 ára. Af þeim voru konur 93.884 eða 46,7 % og karlar 106.914 eða 53,2%. Starfandi innflytjendur voru að jafnaði 37.388 á öðrum ársfjórðungi 2018 eða 18,6% af öllum starfandi.

Þegar horft er til búsetu kemur í ljós að á öðrum ársfjórðungi 2018 voru starfandi með skráð lögheimili á Íslandi að jafnaði 194.673 eða 96,9% allra starfandi. Alls höfðu 163.410 lögheimili hér á landi og einhvern íslenskan bakgrunn eða 83,9%. Af innflytjendum voru 32.110 með lögheimili á Íslandi eða 85,9% en 5.278 höfðu ekki lögheimili á Íslandi eða 14,1%.

Einstaklingur sem fæddur er erlendis og á foreldra og báða afa og báðar ömmur sem einnig eru fædd erlendis, telst innflytjandi samkvæmt aðferðum Hagstofunnar. Aðrir teljast hafa einhvern íslenskan bakgrunn.

Niðurstöður ná til allra einstaklinga með atvinnutekjur sem eru gefnar upp til staðgreiðslu. Það eru laun vegna vinnu, fæðingarorlofsgreiðslur og reiknað endurgjald. Fjöldi starfandi er flokkaður eftir kyni, aldri, bakgrunni og staðsetningu lögheimilis. Nánari upplýsingar er að finna í lýsigögnum á vef Hagstofunnar. Um er að ræða bráðabirgðatölur sem geta tekið breytingum yfir tíma.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.