Alls voru um 214.100 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í febrúar 2025 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fjölgaði um rúmlega 100 á milli ára sem samsvarar 0,1% fjölgun. Fjöldi starfandi kvenna í febrúar var um 100.300 og fjöldi starfandi karla um 113.700.