Alls voru um 237.300 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í júlí 2025 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fjölgaði um 600 á milli ára sem samsvarar 0,3% fjölgun. Fjöldi starfandi kvenna í júlí var um 110.200 og fjöldi starfandi karla um 127.000.