TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 19. ÁGÚST 2026

Alls voru um 234.800 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í júní 2026 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fækkaði um 600 á milli ára sem samsvarar 0,2% lækkun. Fjöldi starfandi kvenna í maí var um 109.500 og fjöldi starfandi karla um 125.300.

Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.