Alls voru um 227.700 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í maí 2026 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fjölgaði um 1.200 á milli ára sem samsvarar 0,5% hækkun. Fjöldi starfandi kvenna í maí var um 106.700 og fjöldi starfandi karla um 121.000.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.