Alls voru um 226.500 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í september 2026 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fjölgaði um 300 á milli ára sem samsvarar 0,12% hækkun. Fjöldi starfandi kvenna í september var um 106.100 og fjöldi starfandi karla um 120.400.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.