FRÉTT VINNUMARKAÐUR 17. APRÍL 2009


Atvinnuleysi 7,1%
Á fyrsta ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,1% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,2% hjá körlum og 4,8% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 12,6%. Frá fyrsta ársfjórðungi 2008 til fyrsta ársfjórðungs 2009 fjölgaði atvinnulausum um 8.500 manns.

Á fyrsta ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 4.200 atvinnulausir og mældist atvinnuleysi 2,3%. Atvinnuleysi mældist þá 2,5% hjá körlum og 2,2% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,5%.

Þeim sem hafa leitað að vinnu í einn mánuð eða meira hefur fjölgað frá fyrsta ársfjórðungi 2008 úr 1.700 í 9.900 á fyrsta ársfjórðungi 2009, eða um 8.200. Á fyrsta ársfjórðungi 2009 leituðu 77,3% atvinnulausra að starfi einn mánuð eða lengur en 42,5% á fyrsta ársfjórðungi 2008.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.

Starfandi fólki fækkar um 8.500 og atvinnuþátttakan var 79,5%
Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2009 var 165.500 manns og fækkaði um 8.500 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.200 manns sem jafngildir 79,5% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 75,5%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fyrsta ársfjórðungi 2008 voru alls 178.100 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 81%. Atvinnuþátttaka karla var 85,5% og kvenna 76,1%.

Vinnutími 38,9 klst. á viku
Á fyrsta ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 43,3 klst. hjá körlum en 33,9 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,7 klst. en 21,4 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fyrsta ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 40,8 klst., 45,5 klst. hjá körlum en 35,1 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 46,2 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 22 klst.

Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á fyrsta ársfjórðungi 2009.


Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 1. ársfjórðungi
  2006 2007 2008 2009
  1. ársfj. 1. ársfj. 1. ársfj. 1. ársfj. Vikmörk ±
Atvinnuþátttaka, % 81,1 82,2 81,0 79,5 1,3
Hlutfall starfandi 79,2 80,5 79,1 73,8 1,4
Atvinnuleysi, % 2,4 2,0 2,3 7,1 1,0
Vinnuafl, áætl. fjöldi 167.500 176.300 178.100 178.200 2.800
Starfandi, áætl. fjöldi 163.500 172.800 174.000 165.500 3.200
Atvinnulausir, áætl. fjöldi 4.000 3.500 4.200 12.700 1.800
Starfandi í fullu starfi, áætl. fjöldi 120.300 128.500 133.500 123.500 2.600
Starfandi í hlutastarfi, áætl. fjöldi 43.200 44.300 40.500 42.000 2.600
Heildarvinnutími, klst. 41,2 41,6 40,8 38,9 0,6
Vinnutími í fullu starfi, klst. 47,2 47,4 46,2 44,7 0,6
Vinnutími í hlutastarfi, klst. 23,8 23,3 22,0 21,4 0,8
Utan vinnumarkaðar, áætl. fjöldi 39.100 38.300 41.800 46.000 2.800
Mannfjöldi, áætl. fjöldi 206.600 214.600 220.000 224.200  
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Framkvæmd
Fyrsti ársfjórðungur 2009 nær til 13 vikna, frá 29. desember 2008 til 29. mars 2009. Heildarúrtakið var 3.877 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.790 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.101 einstaklingi sem jafngildir 81,8% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ± 1,3%, atvinnuleysi ± 1% og vinnutíma ± 0,6 klukkustund.

Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2009 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.