Atvinnuleysi 8,5%
Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 15.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,5% hjá körlum og 7,4% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2011 fækkaði atvinnulausum um 400 manns.
Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysi mest meðal fólks á aldrinum 16–24 ára eða 18,6%. Hjá hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi 6,4% og 5,4% hjá 55–74 ára. Á öðrum ársfjórðungi 2011 var atvinnuleysi 10,2% á höfuðborgarsvæðinu en 5,3% utan þess.
Langtímaatvinnulausum fjölgar
Af þeim sem voru atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2011 voru að jafnaði 2.800 manns búnir að vera atvinnulausir í 1–2 mánuði eða 18% atvinnulausra. Til samanburðar höfðu 2.900 manns verið atvinnulausir í 1–2 mánuði á öðrum ársfjórðungi 2010 eða 18,2% atvinnulausra. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á öðrum ársfjórðungi 2011 höfðu um 3.900 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 24,7% atvinnulausra. Árið 2010 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 2.700 manns eða 16,9% atvinnulausra.
Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru 1,5% af þeim sem voru á vinnumarkaði atvinnulausir í 1–2 mánuði en 1,6% árið 2010. Langtímaatvinnulausir voru 2,1% vinnuaflsins á öðrum ársfjórðungi 2011 samanborið við 1,5% árið 2010.
Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.
Atvinnuþátttaka 83%
Fjöldi starfandi á öðrum ársfjórðungi 2011 var 170.000 manns og fjölgar um 500 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 185.800 manns sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 85,6% en kvenna 80,3%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.
Á öðrum ársfjórðungi 2010 voru alls 185.700 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá 83,3%. Atvinnuþátttaka karla var þá 86,9% og kvenna 79,5%.
Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á öðrum ársfjórðungi 2011.
Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 2. ársfjórðungi | |||||
2008 | 2009 | 2010 | 2011 | ||
2. ársfj. | 2. ársfj. | 2. ársfj. | 2. ársfj. | Öryggisbil ± | |
Atvinnuþátttaka, % | 84,0 | 81,9 | 83,3 | 83,0 | 1,2 |
Hlutfall starfandi | 81,4 | 74,5 | 76,0 | 75,9 | 1,4 |
Atvinnuleysi, % | 3,1 | 9,1 | 8,7 | 8,5 | 1,1 |
Vinnuafl, áætl. fjöldi | 187.200 | 184.200 | 185.700 | 185.800 | 2.600 |
Starfandi, áætl. fjöldi | 181.500 | 167.500 | 169.500 | 170.000 | 3.100 |
Atvinnulausir, áætl. fjöldi | 5.700 | 16.700 | 16.200 | 15.800 | 2.000 |
Starfandi í fullu starfi, áætl. fjöldi | 146.000 | 129.700 | 130.900 | 132.100 | 2.700 |
Starfandi í hlutastarfi, áætl. fjöldi | 35.500 | 37.700 | 38.600 | 38.000 | 2.700 |
Heildarvinnutími, klst. | 42,7 | 40,0 | 40,2 | 40,0 | 0,7 |
Vinnutími í fullu starfi, klst. | 47,0 | 44,5 | 44,6 | 44,2 | 0,7 |
Vinnutími í hlutastarfi, klst. | 24,0 | 23,9 | 24,6 | 25,0 | 1,1 |
Utan vinnumarkaðar, áætl. fjöldi | 35.600 | 40.700 | 37.300 | 38.200 | 2.600 |
Mannfjöldi, áætl. fjöldi | 222.800 | 224.900 | 223.000 | 224.000 | • |
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað. |
Framkvæmd
Annar ársfjórðungur 2011 nær til 13 vikna, frá 4. apríl til 3. júlí. Heildarúrtakið var 3.894 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 3.829 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.124 einstaklingi sem jafngildir 81,6% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±1,2%, atvinnuleysi ±1,1% og vinnutíma ±0,7 klukkustundir.
Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2011 - Hagtíðindi
Talnaefni