FRÉTT VINNUMARKAÐUR 30. OKTÓBER 2015

Atvinnuþátttaka 83,3%
Á þriðja ársfjórðungi 2015 voru 192.800 manns á vinnumarkaði sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Frá þriðja ársfjórðungi 2014 hefur fólki á vinnumarkaði fjölgað um 2.400 og atvinnuþátttakan aukist um eitt prósentustig.

Atvinnuþátttaka kvenna á þriðja ársfjórðungi 2015 var 79,3% en karla 87,3%. Á þriðja ársfjórðungi 2014 var hlutfall kvenna á vinnumarkaði nánast það sama og nú eða 79,4% en hlutfall karla var 82,3%.
Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda 16-74 ára.

Hlutfall starfandi 80,4%
Á þriðja ársfjórðungi 2015 voru 186.000 manns starfandi eða 80,4% af mannfjölda. Frá þriðja ársfjórðungi 2014 til þriðja 2015 fjölgaði starfandi fólki þegar á heildina er litið um 3.200 manns og hlutfallið hækkaði um 1,3 prósentustig.

Hlutfall starfandi kvenna var 76,1% og starfandi karla 84,6%. Starfandi konum fjölgaði um 600 og körlum um 2.500 frá þriðja ársfjórðungi 2014. Hlutfall starfandi kvenna var þá 75,7% og starfandi karla 82,3%.


Atvinnuleysi 3,5%
Á þriðja ársfjórðungi 2015 voru að meðaltali 6.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 3,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 4% hjá konum og 3,1% hjá körlum. Samanburður þriðja ársfjórðungs 2015 við sama ársfjórðung 2014 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 900 manns og hlutfallið lækkaði um 0,7 prósentustig.


Langtímaatvinnuleysi
Af þeim sem voru atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2015 voru að jafnaði 2.900 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 42,9% atvinnulausra. Á þriðja ársfjórðungi 2014 höfðu 4.100 verið atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur, sem þá var 53,3% atvinnulausra.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á þriðja ársfjórðungi 2015 höfðu um 1.400 manns verið langtímaatvinnulausir eða 20,6% atvinnulausra samanborið við 900 manns eða 11,8% atvinnulausra á þriðja ársfjórðungi 2014.

Á þriðja ársfjórðungi 2015 voru 0,7% af þeim sem voru á vinnumarkaði langtímaatvinnulausir sem er 0,3 prósentustigum hærra en á öðrum ársfjórðungi 2015 en þá var hlutfallið 0,4%. Á þriðja ársfjórðungi 2014 var hlutfallið 0,5%.



Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á þriðja ársfjórðungi 2015.

Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 3. ársfjórðungi
  2012 2013 2014 2015
  3. ársfj. 3. ársfj. 3. ársfj. 3. ársfj. Öryggisbil ±
Atvinnuþátttaka, % 81,3 82,7 82,4 83,3 1,2
Atvinnuleysi, % 77,2 79,1 79,1 80,4 1,3
Hlutfall starfandi 5,0 4,4 4,0 3,5 0,7
Starfandi í fullustarfi, % 78,5 79,9 79,5 79,3 1,5
Starfandi í hlutastarfi, % 21,5 20,1 20,5 20,7 1,5
Vinnuafl, áætl. fjöldi 181.800 188.500 190.400 192.800 2.700
Starfandi, áætl. fjöldi 172.700 180.200 182.800 186.000 3.000
Atvinnulausir, áætl. fjöldi 9.100 8.300 7.700 6.800 1.400
Launþegar, áætl. fjöldi 152.000 158.500 159.900 161.900 2.400
Sjálfstætt starfandi, áætl. fjöldi 20.700 21.700 22.900 23.700 2.400
Starfandi í fullu starfi, áætl. fjöldi 135.600 144.000 145.200 147.600 2.800
Starfandi í hlutastarfi, áætl. fjöldi 37.100 36.200 37.500 38.400 2.800
Heildarvinnutími, klst. 40,9 41,8 41,1 41,5 0,7
Vinnutími í fullu starfi, klst. 45,3 45,9 45,3 45,7 0,7
Vinnutími í hlutastarfi, klst. 24,1 24,5 24,3 24,8 1,3
Utan vinnumarkaðar, áætl. fjöldi 41.800 39.300 40.800 38.500 2.700
Mannfjöldi, áætl. fjöldi 223.700 227.800 231.200 231.300
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Vinnumarkaður á 3. ársfjórðungi 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.