FRÉTT VINNUMARKAÐUR 23. SEPTEMBER 2015

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.300 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í ágúst 2015, sem jafngildir 84,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 189.800 starfandi og 7.500 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81,1% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir ágúst 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 1,3 prósentustig og hlutfall starfandi fólks af mannfjölda gerði það einnig eða um 2 stig. Atvinnuleysi dróst hins vegar saman um 0,9 prósentustig frá því í ágúst 2014, úr 4,7% í 3,8%.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára ágúst 2015

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4,2% í ágúst
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 195.300 í ágúst 2015 sem jafngildir 83,7% atvinnuþátttöku, sem er 1,8 prósentustigum hærri en hún var í júlí. Fjöldi atvinnulausra í ágúst var samkvæmt árstíðaleiðréttingu 8.200 sem er aukning um 500 manns frá því í júlí. Hlutfall atvinnulausra jókst úr 4% í júlí í 4,2% í ágúst. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í ágúst 2015 var 80,2%, sem er aukning um 1,6 prósentustig frá því í júlí. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi lækkar lítillega eða um 0,1 prósentustig og um 0,4 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aukist um 0,7 prósentustig og um eitt stig síðustu tólf mánuði.




Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum, eins og sjá má á myndunum hér að framan. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu. 

Ágúst 2015 nær til fjögurra vikna, frá 3. til 30. ágúst. Úrtakið var 1.225 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.187 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 899 einstaklingum sem jafngildir 75,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,3, hlutfall starfandi ±2,5 og atvinnuleysi ±1,4. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í ágúst - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,4 2,1 83,0 2,4 84,3 2,3
Hlutfall starfandi 78,8 2,2 79,1 2,6 81,1 2,5
Atvinnuleysi 4,4 1,3 4,7 1,4 3,8 1,4
Vinnustundir 40,8 1,2 41,3 1,3 40,7 1,3
Vinnuafl 187.700 4.700 192.100 5.500 197.300 5.400
Starfandi 179.500 5.100 183.000 6.000 189.800 5.800
Atvinnulausir 8.200 2.500 9.000 2.800 7.500 2.700
Utan vinnumarkaðar 40.100 4.700 39.400 5.500 36.700 5.400
Áætlaður mannfjöldi 227.800 231.400 234.000

 

 

 

Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  mar.15 apr.15 maí.15 jún.15 júl.15 ágú.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,8 82,3 82,9 83,2 81,9 83,7
Hlutfall starfandi 79,5 78,4 79,0 80,5 78,6 80,2
Atvinnuleysi 4,0 4,7 4,7 3,2 4,0 4,2
Vinnustundir 39,8 39,7 40,0 40,0 40,1 39,7
Vinnuafl 191.800 192.200 194.500 190.700 190.700 195.300
Starfandi 184.100 183.100 185.400 184.500 183.000 187.100
Atvinnulausir 7.700 9.100 9.100 6.100 7.700 8.200
Utan vinnumarkaðar 39.800 41.300 40.000 38.600 42.000 38.000
Áætlaður mannfjöldi 231.600 233.500 234.500 229.200 232.700

233.300

 

 

Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  mar.15 apr.15 maí.15 jún.15 júl.15 ágú.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,2 82,4 82,5 82,6 82,7 82,8
Hlutfall starfandi 78,5 78,7 78,9 79,1 79,2 79,2
Atvinnuleysi 4,5 4,4 4,4 4,3 4,3 4,3
Vinnustundir 39,9 39,9 39,9 39,9 39,9 39,9
Vinnuafl 191.600 192.100 192.500 193.000 193.400 193.800
Starfandi 183.000 183.600 184.100 184.600 185.000 185.400
Atvinnulausir 8.500 8.500 8.400 8.400 8.400 8.400
Utan vinnumarkaðar 41.500 41.100 40.800 40.500 40.300 40.200
Áætlaður mannfjöldi 233.100 233.200 233.300 233.500 233.700 234.000

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.