FRÉTT VINNUMARKAÐUR 27. SEPTEMBER 2018

Áætlað er að 208.600 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í ágúst 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 82,4% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 203.400 starfandi og 5.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,5%.
Samanburður mælinga fyrir ágúst 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 7.900 manns en þrátt fyrir það lækkaði hlutfall þess af mannfjölda um 0,4 prósentustig. Sömu sögu má segja um fjölda starfandi. Þar fjölgaði um 7.600 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnulausir í ágúst 2018 mældust 400 fleiri en í sama mánuði árið 2017 þegar þeir voru 4.800 eða 2,4% af vinnuafli. Alls voru 44.500 utan vinnumarkaðar í ágúst 2018 sem er aukning um 2.900 frá því í ágúst 2017 þegar þeir voru 41.600.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, ágúst 2018

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,0; karlar ±1,3; konur ±1,6.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 2,7% í ágúst 2018
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 206.100 í ágúst 2018. Atvinnuþáttaka var því 81,8% í ágúst, sem er sama hlutfall og var í júlí. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í ágúst var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.500 eða 2,7%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í ágúst 2018 var 79,6%, sem er 0,7 prósentustigum hærra en það var í júlí. Eins og myndirnar hér að neðan sýna þá stendur leitni síðustu mánaða og árs nánast í stað þrátt fyrir nokkrar sveiflur í mælingum á vinnuafli.

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í ágúst 2018 nær til fimm vikna, frá 3. ágúst til og með 2. september. Í úrtak völdust af handahófi 1.924 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.867 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.215 einstaklingum og jafngildir það 65,1% svarhlutfalli.

Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra mælinga fyrir ágúst 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,0 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,2 prósentustig og atvinnuleysi ±1,0 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungsins (júlí og ágúst) eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í ágúst — mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2016 (±95%)  2017 (±95%)  2018 (±95%) 
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 85,3 2,3 82,8 2,2 82,4 2
Hlutfall starfandi 82,9 2,5 80,8 2,4 80,4 2,2
Atvinnuleysi 2,9 1,3 2,4 1 2,5 1
Vinnustundir 40,3 1,4 40,4 1,4 41,9 1,2
Vinnuafl 201.500 5.500 200.700 5.500 208.600 5.100
Starfandi 195.700 6.000 195.800 5.900 203.400 5.500
Atvinnulausir 5.800 2.600 4.800 2.500 5.200 2.100
Utan vinnumarkaðar 34.600 5.500 41.600 5.500 44.500 5.100
Áætlaður mannfjöldi 236.200 242.300 253.100
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting
  mar.18 apr.18 maí.18 jún.18 júl.18 ágú.18
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,2 82,4 81,0 80,9 81,8 81,8
Hlutfall starfandi 80,3 79,3 79,7 78,1 78,8 79,6
Atvinnuleysi 2,2 3,7 1,7 3,4 3,7 2,7
Vinnustundir 39,9 40,0 39,3 39,6 39,9 40,4
Vinnuafl 204.700 203.100 201.100 201.300 206.300 206.100
Starfandi 200.100 195.600 197.700 194.400 198.700 200.500
Atvinnulausir 4.500 7.600 3.300 6.900 7.600 5.500
Utan vinnumarkaðar 44.400 43.500 47.000 47.600 45.800 46.000
Áætlaður mannfjöldi 249.100 246.600 248.100 248.900 252.100 252.000
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni
  mar.18 apr.18 maí.18 jún.18 júl.18 ágú.18
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 82,0 82,0 81,9 81,9 81,9
Hlutfall starfandi 79,6 79,6 79,6 79,5 79,5 79,5
Atvinnuleysi 3,0 3,0 2,9 2,9 2,9 2,9
Vinnustundir 39,9 39,9 39,8 39,7 39,8 39,9
Vinnuafl 202.800 203.000 203.100 203.300 203.600 204.000
Starfandi 196.700 197.000 197.200 197.400 197.700 198.200
Atvinnulausir 6.100 6.000 5.900 5.900 5.900 5.900
Utan vinnumarkaðar 44.500 44.600 44.700 44.900 45.000 45.100
Áætlaður mannfjöldi 247.200 247.600 247.900 248.200 248.600 249.100

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.