FRÉTT VINNUMARKAÐUR 26. SEPTEMBER 2019

Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar voru atvinnulausir 8.500 í ágúst, eða 4,4%, sem er 1,3 prósentustigum hærra en í júlí. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,0%, sem er um 1,2 prósentustigum lægri en í júlí. Árstíðarleiðrétt hlutfall starfandi fólks var 76,9% í ágúst 2019 sem er með því lægsta sem mælst hefur síðasta hálfa árið.

Þegar horft er til síðustu sex mánaða, sýnir árstíðarleiðrétt leitni að tölur um atvinnuþátttöku lækkuðu um 1,4 prósentustig og hlutfall starfandi um 1,7 prósentustig, á meðan atvinnuleysi jókst um 0,3 prósentustig.

Samkvæmt óleiðréttum mælingum er áætlað að um 204.300 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í ágúst 2019. Það jafngildir 79,5% (±2,7) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 195.800 (±3.800) vera starfandi og 8.600 (±700) án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 76,2% (±3,0) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,2% (±1,3).

Samanburður óleiðréttra mælinga fyrir ágúst 2018 og 2019 sýnir að vinnuaflið dróst saman um 2.400 manns og að hlutfall þess af mannfjölda dróst saman um tæp 3 prósentustig. Starfandi fólki fækkaði um 5.800 og hlutfall þess var rúmlega 4 prósentustigum lægra en það var á sama tíma árið 2018.

Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru atvinnulausir í ágúst 2019 um 3.500 manns fleiri en á sama tíma árið 2018 þegar þeir voru 5.100. Þá sýna óleiðréttar mælingar töluverða hækkun á hlutfalli atvinnulausra milli ára, eða um 1,7 prósentustig. Einnig eru mun fleiri áætlaðir utan vinnumarkaðar í ágúst 2019, eða um 52.600, samanborið við 44.100 í ágúst árið á undan.

Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, ágúst 2019 – Óleiðrétt mæling Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, ágúst 2019 – Óleiðrétt mæling Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,3; karlar ±1,4; konur ±2,4

Mynd 1. Mánaðarlegt atvinnuleysi 16-74 ára.

Mynd 2. Mánaðarlegt hlutfall starfandi 16-74 ára.

Mynd 3. Mánaðarlegt hlutfall utan vinnumarkaðar 16-74 ára.

Mánaðarlegt atvinnuleysi ungs fólks 16-24 ára.

Tafla 1. Vinnumarkaður í ágúst — mæling
Öryggisbil Öryggisbil Öryggisbil
 2017 (±95%)2018 (±95%)2019 (±95%)
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 82,8 2,2 82,4 2,3 79,5 2,7
Hlutfall starfandi 80,8 2,4 80,4 2,2 76,2 3,0
Atvinnuleysi 2,4 1,2 2,5 0,8 4,2 1,3
Vinnustundir 40,4 1,4 41,8 0,9 40,5 1,3
Vinnuafl 200.700 5.500 206.700 3.800 204.300 4.200
Starfandi 195.800 5.900 201.600 3.800 195.800 3.800
Atvinnulausir 4.800 2.500 5.100 500 8.600 700
Utan vinnumarkaðar 41.600 5.500 44.100 1.700 52.600 2.500
Áætlaður mannfjöldi 242.300 250.800 257.000

Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétting
 mar.19apr.19maí.19jún.19júl.19ágú.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 82,6 82,0 80,5 81,4 81,2 80,0
Hlutfall starfandi 80,1 79,3 76,7 78,7 78,7 76,9
Atvinnuleysi 3,1 3,3 4,8 3,3 3,1 4,4
Vinnustundir 39,4 40,1 39,5 39,0 38,9 39,6
Vinnuafl 210.000 209.500 210.000 207.500 207.800 205.000
Starfandi 203.600 202.600 200.000 200.700 201.300 195.500
Atvinnulausir 6.500 6.900 10.000 6.800 6.500 8.500
Utan vinnumarkaðar 44.200 45.900 50.700 47.500 48.100 52.300
Áætlaður mannfjöldi 254.200 255.400 260.800 255.000 255.900 256.800
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétt leitni
 mar.19apr.19maí.19jún.19júl.19ágú.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,7 81,6 81,5 81,4 81,4 80,3
Hlutfall starfandi 79,0 78,9 78,8 78,7 78,6 77,3
Atvinnuleysi 3,2 3,3 3,4 3,4 3,4 3,5
Vinnustundir 39,5 39,5 39,4 39,3 39,2 39,9
Vinnuafl 208.400 208.500 208.300 208.100 208.000 207.600
Starfandi 201.600 201.500 201.200 201.000 200.900 198.900
Atvinnulausir 6.700 7.000 7.100 7.100 7.000 7.100
Utan vinnumarkaðar 46.700 46.900 47.200 47.400 47.600 49.800
Áætlaður mannfjöldi 255.100 255.400 255.500 255.500 255.600 256.800

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í ágúst 2019 nær til fimm vikna, frá 29. júlí til 30. ágúst 2019. Í úrtak völdust af handahófi 1.926 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir, eða reyndust búsettir erlendis, var nettóúrtakið 1.875 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.158 einstaklingum og jafngildir það 61,8% svarhlutfalli. Áætlaðar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Leiðrétting
Samfara þessari mánaðarbirtingu hafa heildartölur um fjölda við vinnu í viðmiðunarvikunni verið lagfærðar. Frá því í mars 2019 hefur árstíðarleiðrétt heildartala fjölda við vinnu í viðmiðunarviku verið röng og hefur það nú verið leiðrétt.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.